Prentað þann 12. nóv. 2026
Breytingareglugerð
845/2026
Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 903/2024 um hollustuhætti.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. reglugerðarinnar:
- 4. mgr. verður eftirleiðis svohljóðandi:
Um málsmeðferð vegna auglýsingar tillögu að starfsleyfi og draga að breytingu á starfsleyfi fer samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. - 5. mgr. fellur brott.
- Við 2. málsl. 6. mgr. bætist: eftir því sem við á.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 4. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 9. júlí 2026.
Jóhann Páll Jóhannsson.
Stefán Guðmundsson.
B deild - Útgáfudagur: 23. júlí 2026
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.