Prentað þann 22. des. 2024
769/2020
Reglugerð um breytingu á reglugerð um útlendinga, nr. 540/2017.
1. gr.
Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Útlendingi sem dvaldi hér á landi fyrir 20. mars 2020 í samræmi við 8. gr. reglugerðarinnar og 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga en hefur ekki komist til síns heima vegna ferðatakmarkana, sóttkvíar eða einangrunar er heimilt að dvelja hér á landi án dvalarleyfis eða vegabréfsáritunar til og með 10. september 2020.
Ákvæði 1. mgr. kemur ekki í veg fyrir frávísun eða brottvísun þeirra sem voru í ólögmætri dvöl fyrir 20. mars 2020 eða frávísun eða brottvísun á öðrum grundvelli samkvæmt ákvæðum útlendingalaga.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 4. mgr. 49. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Við gildistöku reglugerðar þessarar fellur úr gildi reglugerð nr. 656/2020.
Dómsmálaráðuneytinu, 6. ágúst 2020.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.
Bryndís Helgadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.