Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. maí 2021
Sýnir breytingar gerðar 1. maí 2021 af rg.nr. 477/2021

750/2017

Reglugerð um söfnun, endurvinnslu og skilagjald á einnota drykkjarvöruumbúðir.

1. gr. Skilagjald.

Leggja skal skilagjald á innfluttar drykkjarvörur í einnota flöskum og dósum úr stáli, áli, gleri og plastefni sem innheimt skal við tollafgreiðslu. Sama gjald skal lagt á drykkjarvörur sem framleiddar eru eða átappaðar hér á landi og seldar eru í sams konar umbúðum og að framan greinir. Skal greiða gjaldið samhliða vörugjaldi af innlendum drykkjarvörum. Skilagjald skal nema 14,4116,22 kr. án virðisaukaskatts á hverja umbúðaeiningu.

Vörur í öðrum umbúðum, sem flokkast undir tollskrárnúmer sem upp eru talin í 3. gr. reglugerðar þessarar og bera ekki skilagjald skal um tollafgreiðslu fara skv. 4. gr. reglugerðarinnar.

2. gr. Umsýsluþóknun.

Umsýsluþóknun skal leggja til viðbótar skilagjaldi á hverja umbúðaeiningu úr stáli, áli, gleri og plastefni og skal fjárhæð hennar án virðisaukaskatts vera 5,506,60 kr. á umbúðir úr stáli, 0,200,80 kr. fyrirá umbúðir úr áli, 5,3012,30 kr. á umbúðir úr gleri stærri en 500 ml, 3,909,40 kr. á umbúðir úr gleri 500 ml og minni, 3,204,30 kr. á umbúðir úr lituðu plastefni, og 1,302,40 kr. á umbúðir úr ólituðu plastefni og 1,40 kr. á umbúðir úr ólituðu plastefni sem er a.m.k. 35% endurunnið.

3. gr. Gjaldskylda.

Gjaldskylda samkvæmt 1. gr. nær til allra drykkjarvara í einnota flöskum og dósum úr stáli, áli, gleri og plastefnum sem fluttar eru til landsins eða eru framleiddar eða átappaðar hérlendis og eru til sölu hér á landi og flokkast undir vöruliði 2009, 2201, 2202, 2203, 2204, 2205, 2206 eða 2208 í tollskrá samkvæmt viðauka I við tollalög nr. 88/2005.

Skilagjald leggst ekki á drykkjarvörur í einnota umbúðum, sem seldar eru úr landi. Við flokkun til gjaldskyldu samkvæmt reglugerð þessari skal fylgja almennum reglum um túlkun tollskrár.

Ákvæði tollalaga gilda jafnframt um úrskurðarvald í ágreiningsmálum um tollflokkun drykkjarvara.

4. gr. Álagning skilagjalds.

Öllum þeim, sem flytja inn til landsins skilagjaldsskyldar vörur skv. 1. gr., hvort sem er til eigin nota eða endursölu, ber skylda til við tollafgreiðslu að greiða skilagjald og umsýsluþóknun af hinum innfluttu vörum.

Við tollafgreiðslu á vörum sem bera ekki skilagjald, en flokkast undir tollskrárnúmer sem upp eru talin í 3. gr. reglugerðarinnar, skal tilgreina undanþágutilvísun í viðeigandi reit aðflutningsskýrslu samkvæmt ákvörðun tollstjóraskattsins.

Skilagjald og umsýsluþóknun mynda ekki gjaldstofn við útreikning annarra aðflutningsgjalda en virðisaukaskatts.

5. gr. Gjaldskyldir aðilar.

Þeim, sem framleiða eða tappa á skilagjaldsskyldar vörur innanlands, ber skylda til að greiða skilagjald og umsýsluþóknun af framleiðslu sinni og standa skil á því í ríkissjóð. Skilagjald og umsýsluþóknun mynda ekki gjaldstofn við álagningu vörugjalds eða annarra sambærilegra framleiðslugjalda. Gjöldin mynda hins vegar stofn til virðisaukaskatts.

6. gr. Innheimta, uppgjörstímabil, gjalddagar o.fl.

Skilagjald og umsýsluþóknun af innlendum drykkjarvörum reiknast við sölu eða afhendingu þeirra frá framleiðanda, og skiptir þá ekki máli hvenær eða með hvaða hætti greiðsla kaupanda fer fram.

Hvert uppgjörstímabil vegna skilagjaldsskyldrar innlendrar framleiðslu eða átöppunar eru tveir mánuðir: janúar og febrúar; mars og apríl; maí og júní; júlí og ágúst; september og október; nóvember og desember.

Skilagjaldi og umsýsluþóknun af innlendri framleiðslu, ásamt skilagjaldsskýrslu í því formi sem tollstjóriskatturinn ákveður, skal skila eigi síðar en á gjalddaga, og skulu framleiðendur senda Endurvinnslunni hf. afrit af innlagðri skilagjaldsskýrslu. Gjalddagi hvers uppgjörstímabils er 28. dagur annars mánaðar eftir lok þess vegna sölu eða afhendingar á því tímabili. Beri gjalddaga upp á helgidag eða almennan frídag, færist gjalddagi á næsta virkan dag þar á eftir.

7. gr. Viðurlög.

Ef skilagjald eða skilagjald og umsýsluþóknun er ekki greitt á tilskildum tíma, skal aðili sæta álagi til viðbótar þeim gjöldum sem honum ber að standa skil á. Sama gildir ef skýrslu skv. 6. gr. hefur ekki verið skilað eða verið ábótavant og gjöld því áætluð, nema aðili hafi greitt fyrir gjalddaga upphæð, er til áætlunarinnar svarar, eða gefið fullnægjandi skýringu á vafaatriðum fyrir lok kærufrests.

Álag skv. 1. mgr. skal vera 1% af þeirri upphæð sem vangreidd er fyrir hvern byrjaðan dag eftir gjalddaga, þó ekki hærra en 10%.

Sé skilagjald eða skilagjald og umsýsluþóknun ekki greitt innan mánaðar frá gjalddaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er. Um ákvörðun og útreikning dráttarvaxta fer samkvæmt lögum nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu.

8. gr. Innheimta og endurgreiðsla.

Skilagjald og umsýsluþóknun skal greiða í ríkissjóð, er síðan ráðstafar umsýsluþóknuninni, skilagjaldinu og virðisaukaskatti af því jafnskjótt og við verður komið til Endurvinnslunnar hf.

Endurvinnslan hf. skal sjá um að skilagjaldið verði endurgreitt neytendum ásamt virðisaukaskatti af því við móttöku á notuðum skilagjaldsskyldum umbúðum. Skal endurgreiðslan þannig nema samtals 14,4116,22 kr. án virðisaukaskatts á hverja umbúðaeiningu. Þó skulu líða 602 dagarmánuðir frá hækkun álagðs skilagjalds þar til Endurvinnslan hf. hækkar endurgreiðslu til neytenda fyrir sérhverjar umbúðir, sem skilað verður, úr 15,0016,00 kr. í 16,0018,00 kr. með virðisaukaskatti. Á sama hátt skal greiða samsvarandi gjald til einstaklinga, fyrirtækja eða félagasamtaka, sem taka að sér að safna slíkum umbúðum til eyðingar eða endurvinnslu.

9. gr. Gerð drykkjarvöruumbúða.

Skilagjaldsskyldar drykkjarvöruumbúðir skulu strikamerktar á merkimiða á hverri skilaskyldri umbúð fyrir sig og skal strikamerki vera hluti af ISO/IEC 15420 stöðlum. Strikamerki skal vera a.m.k. 70% af skilgreindri grunnstærð strikamerkis samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Fari innflytjendur eða framleiðendur ekki að kröfum skv. 1. og 2. mgr. ber Endurvinnslunni hf. að beina tilkynningum um brot þeirra til lögreglu skv. 10. gr. laga nr. 52/1989, um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur.

10. gr. Endurvinnslan hf.

Endurvinnslan hf. skal sjá um að koma upp og viðhalda skilvirku fyrirkomulagi á söfnun skilagjaldsskyldra umbúða um land allt. Félagiðallt.Félagið skal einnigstuðla endurvinnaað því að umbúðir fari til undirbúnings fyrir endurnotkun, endurvinnslu eða annarrar endurnýtingar í samræmi við forgangsröðun við meðhöndlun úrgangs, sbr. lög nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, eða koma þeim annars til endurvinnslu eða eyðingarförgunar.

Endurvinnslan hf. skal gefa umhverfis- og auðlindaráðuneytinu reglulega skýrslu um starfrækslu skilakerfisins, þar með talið fjölda skilaðra umbúða eftir tegundum.

11. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 4. gr. laga nr. 52/1989, um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, og öðlast gildi 1. september 2017. Jafnframt fellur reglugerð nr. 368/2000, um söfnun, endurvinnslu og skilagjald á einnota umbúðir fyrir drykkjarvörur, með síðari breytingum, úr gildi.

Reglugerð þessi hefur verið tilkynnt í samræmi við ákvæði tilskipunar 98/34/EB sem setur reglur um tilhögun upplýsingaskipta vegna tæknilegra reglna.

 Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 11. ágúst 2017. 

 Björt Ólafsdóttir. 

 Sigríður Auður Arnardóttir. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.