Prentað þann 22. des. 2024
648/1995
Reglugerð um réttindi og skyldur manna, sem dveljast erlendis við nám, skv. ákvæðum laga um opinber gjöld.
1. gr.
Þeir menn sem dveljast erlendis við nám, geta haldið öllum réttindum sem heimilisfesti hér á landi veitir skv. lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt og öðrum lögum um opinber gjöld eftir því sem nánar er kveðið á um í reglugerð þessari.
Ákvæði 1. mgr. á við, þrátt fyrir að menn séu með fasta búsetu erlendis, enda hafi þeir verið búsettir hér á landi eða uppfyllt skilyrði reglugerðar þessarar síðustu 5 árin áður en nám hófst.
Nám skv. 1. mgr. telst hverskonar reglulegt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á framhalds- eða háskólastigi enda sé námið ætlað sem aðalstarf og námstími eigi skemmri en 6 mánuðir eða sem svarar til 624 klst. á ári.
Til náms skv. 1. mgr. telst starfsþjálfun, sérhæfing eða öflun sérfræðiréttinda enda séu skilyrði 3. mgr. uppfyllt.
Til náms skv. 1. mgr. telst ekki nám í grunnskólum, menntaskólum eða sambæri- legum menntastofnunum, nema nám að loknum grunnskóla veiti formleg starfsréttindi eða heimild til að bera starfsheiti.
2. gr.
Maki námsmanns og börn hans eldri en 16 ára geta haldið sömu réttindum og námsmaður ef sýnt er fram á að dvöl þeirra erlendis sé bein afleiðing af námi hans, en ekki sérstaklega til tekjuöflunar eða öflunar sérþekkingar, sem ekki fellur undir ákvæði þessarar reglugerðar. Sama gildir um sambúðarfólk, sem uppfyllir skilyrði fyrir sam- sköttun, sbr. 3. mgr. 63. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt.
3. gr.
Námsmenn, makar þeirra og börn eldri en 16 ára, sem óska eftir að halda hér á landi skattalegri heimilisfesti, skulu árlega sækja um það á skattframtali. Skattframtal skal senda skattstjóra í því umdæmi sem þeir voru síðast skattskyldir í fyrir brottför með upplýsingum um allar tekjur, hvar sem þeirra er aflað og allar eignir, hvar sem þær eru. Leggja skal fram eftirtalin gögn og upplýsingar með skattframtali:
1.Vottorð um nám erlendis á tekjuári þar sem fram komi:
a) hvaða nám var stundað og hve lengi,
b) hvenær nám hófst,
c) hvenær námslok séu áætluð.
2. Upplýsingar um eftirfarandi:
a) hvert hafi verið síðasta lögheimili námsmanns hér á landi,
b) hver sé umboðsmaður eða hvert sé póstfang námsmanns hér á landi.
3.Upplýsingar um tekjur erlendis:
a) staðfest ljósrit af erlendum skattframtölum ef tekjur koma þar fram, eða
b) skriflegt tekjuvottorð frá erlendum skattyfirvöldum, eða
c) erlenda álagningarseðla, eða
d) staðfestingu á skattauppgjöri erlendis.
4.Staðfestingu um barnabætur o.þ.h. greiðslur erlendis ef um þær var að ræða. Fram komi heildargreiðslur tekjuársins.
Skattstjórar skulu taka ákvörðun um réttindi samkvæmt reglugerð þessari í samræmi við framlögð gögn við álagningu opinberra gjalda ár hvert.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 70. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
FjármálaráðuneytiðEf fyrir hendi eru aðstæður sem valda því að ekki reynist unnt að fullnægja ákvæðum námskrár um nám og starfsþjálfunartíma í löggiltri iðngrein, 4setur menntamálaráðherra reglur um sérstaka tilhögun náms, starfsþjálfunar og réttindaveitingar í iðngreininni, að fengnum tillögum hlutaðeigandi fræðslunefndar. desemberÁður 1995.en til staðfestingar kemur skal afla umsagnar Iðnfræðsluráðs.
F. h. r. Bragi Gunnarsson.
Ragnheiður Snorradóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.