Prentað þann 21. des. 2024
587/2002
Reglugerð um gjöld fyrir skoðun, skráningu, mælingu skipa o.fl.
Efnisyfirlit
- I. KAFLI
- II. KAFLI Gjöld skv. 20. gr. laga um skráningu skipa, nr. 115/1985 með síðari breytingum.
- III. KAFLI Gjöld skv. 15. gr. laga um skipamælingar, nr. 50/1970.
- IV. KAFLI Gjöld skv. 14. gr. laga um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, nr. 76/2001.
- V. KAFLI Gjöld skv. 6. gr. laga um köfun, nr. 31/1996.
- VI. KAFLI Önnur gjöld o.fl.
I. KAFLI
Gjöld skv. 28. gr. laga um eftirlit með skipum, nr. 35/1993.
1. gr.
Skipagjald.
Eigandi skips skal greiða árlega í ríkissjóð sérstakt gjald, skipagjald, af hverju skipi sem skráð er á aðalskipaskrá. Við eigendaskipti ber hinn fyrri eigandi ábyrgð á gjaldinu þar til umskráning hefur farið fram.
Í skipagjaldinu er meðtalinn kostnaður vegna aðalskoðunar skips sé hún framkvæmd hér á landi. Fari skoðunin fram erlendis að beiðni eiganda ber honum að greiða auk skipagjaldsins fargjöld og dagpeninga skoðunarmanns.
Skylda til að greiða skipagjaldið fellur ekki niður þótt eigandi skips færi það ekki til árlegrar aðalskoðunar, né heldur þótt skipið hafi ekki verið í notkun um stundarsakir. Siglingastofnun er þó heimilt að fella niður helming gjaldsins hafi skip ekki verið skoðað né haft haffæri á almanaksárinu. Einnig er stofnuninni heimilt að fella niður hluta skipagjalds afskráningarársins hafi afskráningin verið gerð vegna úreldingar skipsins eða sölu þess úr landi.
Skipagjaldið vegna skipa sem flokkuð eru hjá Siglingastofnun Íslands skal vera sem hér segir:
Kr. | |
Fyrir skip allt að 8 m að skráningarlengd | 12.500 |
Fyrir skip 8 m að lengd til 15 m mestu lengd | 22.400 |
Fyrir skip 15 m að lengd til 24 m skráningarlengd | 50.000 |
Fyrir skip 24 m að lengd til 45 m skráningarlengd | 99.200 |
Fyrir skip 45 m að lengd til 60 m skráningarlengd | 163.800 |
Fyrir skip yfir 60 m að skráningarlengd | 216.800 |
Vegna skipa sem flokkuð eru hjá viðurkenndu flokkunarfélagi skal greiða 60% af ofangreindum gjaldstofni.
Fyrir flotbryggjur og önnur mannvirki á skipaskrá sem ekki eru háð árlegu eftirliti sem og skoðun flotkvía greiðist samkvæmt reikningi.
Ef óskað er eftir að skoðun fari fram utan dagvinnutíma skal greiða fyrir vinnuna samkvæmt útseldum taxta starfsmanns Siglingastofnunar.
2. gr. Aukaskoðun.
Fyrir aukaskoðun skal greiða skv. reikningi Siglingastofnunar Íslands.
3. gr. Nýsmíðagjald.
Vegna skipa sem eru í smíðum skal greiða nýsmíðagjald. Fyrir yfirferð og samþykkt smíðalýsinga og teikninga, skipamælingar, yfirferð stöðugleikagagna og hleðslu- og stöðugleikaprófun, eftirlit með smíði skipsins, skoðun á skipi og búnaði þess og skráningu skips skal greiða nýsmíðagjald. Gjaldið skal miðast við framlagða vinnu starfsmanna Siglingastofnunar Íslands samkvæmt útseldum taxta stofnunarinnar. Jafnframt skal greiða ferðakostnað og dagpeninga starfsmanna Siglingastofnunar Íslands vegna ferðalaga erlendis vegna nýsmíðinnar. Auk nýsmíðagjalds skal greiða fyrir skírteini og önnur skipsskjöl í samræmi við önnur ákvæði reglugerðar þessarar.
Gjaldið er innheimt að loknum hverjum verkþætti skv. framangreindri upptalningu.
Lokagreiðsla fer fram við afhendingu skírteina skipsins og skipsskjala. Verkkaupi skipasmíðar og eigandi skips að smíði lokinni eru sameiginlega ábyrgir fyrir greiðslu nýsmíðagjalds.
4. gr. Eftirlit með viðgerðum.
Fyrir eftirlit með viðgerðum skal greiða skv. reikningi Siglingastofnunar Íslands.
Fari viðgerð fram erlendis er heimilt að innheimta fyrirfram hjá eiganda skips upphæð sem svarar til fargjalda og áætlaðra dagpeninga skoðunarmanna.
5. gr. Hleðslumerki.
Fyrir hleðslumerkjaútreikninga og útgáfu skírteina ásamt hleðslumerkjaskoðun, sem ekki fellur undir nýsmíði, skal greiða:
Kr. | |
Skip til og með 500 BT (brúttótonn) | 12.900 |
Skip 501 BT til og með 1000 BT | 17.100 |
Skip 1001 BT til og með 2000 BT | 21.400 |
Skip 2001 BT til og með 5000 BT | 25.720 |
Hleðslumerkjaútreikningar skipa stærri en 5000 BT greiðast eftir reikningi Siglingastofnunar Íslands. Fyrir útgáfu hleðslumerkjaskírteinis sem gefið er út skv. hleðslumerkjaútreikningum frá erlendum stjórnvöldum eða viðurkenndu flokkunarfélagi skal greiða kr. 4.300.
Fyrir árlega áritun hleðslumerkjaskírteinis skal greiða kr. 1.470 fari umrædd skoðun fram um leið og búnaðarskoðun.
Fyrir endurnýjun á skírteini sem glatað er, eða fallið úr gildi, skal greiða kr. 1.260 enda sé sérstakrar skoðunar ekki þörf.
6. gr. Önnur gjöld.
Fyrir skoðun á notuðum skipum sem fyrirhugað er að flytja til landsins skal greiða gjald sem miðast við framlagða vinnu starfsmanna Siglingastofnunar Íslands samkvæmt útseldum taxta stofnunarinnar auk annarra gjalda s.s. fyrir mælingu og útgáfu skírteina og skipsskjala eftir því er við á.
Fyrir framlengingu haffæris án vettvangsskoðunar greiðist kr. 2.500. Fyrir framlengingu haffæris með vettvangsskoðun greiðist samkvæmt reikningi.
Kr. | |
Leyfi til farþegaflutninga með skipum | 4.620 |
Fyrir skoðun brunaviðvörunarkerfa skipa greiðast eftirtalin gjöld. | |
0 – 8 metra skip | 1.300 |
8 – 24 metra | 2.200 |
24 – 30 metra | 4.400 |
30 – 45 metra | 8.200 |
45 metra og lengri | 11.600 |
Fyrir eftirfarandi skírteini skipa greiðast eftirtalin gjöld:
Kr. | |
GMDSS fjarskiptaskírteini, | 7.100 |
ISM skírteini – DOC; | 3.900 |
ISM skírteini – SMC; | 3.900 |
Skírteini fyrir prófun bómu | 5.500 |
II. KAFLI Gjöld skv. 20. gr. laga um skráningu skipa, nr. 115/1985 með síðari breytingum.
7. gr. Skráning skipa og útgáfa skipsskjala.
Fyrir skráningu skips og útgáfu skipsskjala skal greiða:
1. Íslenskt mælibréf og skráningarskírteini fyrir skip | Kr. |
allt að 15 m að mestu lengd | 5.900 |
2. Þjóðernisskírteini | 9.700 |
3. Mælibréf | 5.900 |
4. Staðfest afrit af mælibréfi, skírteini | 1.100 |
5. Einkaleyfi á skipsnafni | 33.300 |
6. Viðurkenningarskírteini og skilti | 950 |
7. Vottorð um útstrikun skipa af aðalskipaskrá | 1.500 |
Við eigendaskipti og umskráningu skips skulu öll áfallin ógreidd gjöld skv. reglugerð þessari greidd að fullu.
Heimilt er að taka hálft gjald fyrir endurútgáfu íslensks mælibréfs og skráningarskírteinis fyrir skip allt að 15 m að mestu lengd ef um eina breytingu er að ræða er varðar mælinguna og útreikninga er ekki þörf.
III. KAFLI Gjöld skv. 15. gr. laga um skipamælingar, nr. 50/1970.
8. gr. Mæling skipa.
Fyrir endurmælingu skips og útgáfu mælibréfs eða yfirlýsingu skal greiða:
Samkvæmt Oslóarsamþykkt: | kr. |
Fyrir opna báta | 10.400 |
Þilfarsskip allt að 25 brl. | 17.000 |
Þilfarsskip 25 brl. til og með 100 brl. | 23.600 |
Þilfarsskip 101 brl. til og með 250 brl. | 37.600 |
Þilfarsskip 251 brl. til og með 500 brl. | 57.400 |
Þilfarsskip 501 brl. til og með 1600 brl. | 81.600 |
Þilfarsskip 1601 brl. til og með 5000 brl. | 108.100 |
Þilfarsskip 5001 brl. og stærri greiðist eftir reikningi Siglingastofnunar Íslands. |
Samkvæmt íslenskum mælingarreglum og Lundúnasamþykkt frá 1969:
Kr. | |||
Flokkur | I. | Fyrir skip allt að 15 m mestu lengd | 10.400 |
Flokkur | II. A | Skip 15,01 m mesta lengd – 24,00 m skráningarlengd. | |
Mæling í slipp (engin línu- eða bandateikning). | |||
Vinna eftir mælingum og teikningum, útgáfa skírteinis | 48.600 | ||
II. B | Eftirlitsmæling um borð. | ||
Vinna við útreikning eftir línu- eða bandateikningum | |||
og öðrum teikningum | 34.000 | ||
Flokkur | III. A | Skip 24,01 m – 45,00 m skráningarlengd. | |
Mæling í slipp (engin línu- eða bandateikning). | |||
Vinna eftir mælingum og teikningum, útgáfa mælibréfs | 88.300 | ||
III. B | Eftirlitsmæling um borð. | ||
Vinna við útreikning eftir línuteikningu eða bandateikningu | |||
og öðrum stálteikningum og útgáfa mælibréfs | 59.000 | ||
Flokkur | IV. A | Skip 45,01 m – 60,0 m skráningarlengd. | |
Mæling í slipp (engin línu- eða bandateikning). | |||
Vinna eftir mælingum og teikningum og útgáfa mælibréfs | 123.000 | ||
IV. B | Eftirlitsmæling um borð. | ||
Vinna við útreikning eftir línu- eða bandateikningu og | |||
öðrum stálteikningum og útgáfa mælibréfs | 88.300 | ||
Flokkur | V. | Skip 60,01 m skráningarlengd og lengri. | |
Greiðsla samkvæmt reikningi. |
Fyrir endurskoðun á mæliskýrslum gerðum af öðrum aðila en Siglingastofnun Íslands samkvæmt Lundúnasamþykkt um mælingu skipa frá 1969 greiðist:
Kr. | |
Fyrir skip til og með 45 m skráningarlengd | 20.300 |
Fyrir skip yfir 45 m skráningarlengd | 33.700 |
Að auki skal greiða kostnað á ferðalögum innanlands og erlendis vegna mælinga skv. reikningi Siglingastofnunar Íslands.
IV. KAFLI Gjöld skv. 14. gr. laga um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, nr. 76/2001.
9. gr. Skírteini vegna farþegaskipa og flutningaskipa.
1. | Útgáfa alþjóðlegs atvinnuskírteins (STCW) til starfa á farþegaskipum og flutningaskipum kr. 7.900. Hafi umsækjandi gilt íslenskt atvinnuskírteini skal greiða kr. 2.600. |
2. | Útgáfa áritunar vegna viðurkenningar á erlendu alþjóðlegu atvinnuskírteini (STCW) á farþegaskipum og flutningaskipum kr. 7.900. |
3. | Útgáfa undanþágu til starfa á farþegaskipum og flutningaskipum til allt að 6 mánaða kr. 7.900. |
4. | Útgáfa öryggismönnunarskírteinis fyrir farþegaskip og flutningaskip kr. 10.000. |
5. | Fyrir endurnýjun framantalinna leyfa og skírteina skal greiða kr. 1.600. |
V. KAFLI Gjöld skv. 6. gr. laga um köfun, nr. 31/1996.
10. gr. Gjöld fyrir skráningu og skoðun köfunarbúnaðar.
Eigandi köfunarbúnaðar, sem ætlaður er til að nota við köfun í atvinnuskyni, greiðir eftirtalin gjöld fyrir skráningu og skoðun hans:
Kr. | ||
1. | Grunngjald skráðs köfunarbúnaðar | 7.000 |
(Skráningarskyldur köfunarbúnaður er lunga, heilgríma, | ||
hjálmur og loftþjappa). | ||
2. | Fyrir greiningu lofts (þrjú rör) | 4.500 |
3. | Fyrir Dragerrör til loftgreiningar | 1.500 |
11. gr. Gjöld vegna próftöku til köfunarréttinda.
Vegna próftöku til köfunarréttinda greiðast eftirtalin gjöld:
Kr. | |
1. Fyrir próf til A-réttinda | 24.200 |
2. Fyrir próf til B-réttinda | 24.200 |
3. Fyrir próf til C-réttinda (froskköfun) | 12.100 |
4. Fyrir önnur próf | 7.900 |
5. Fyrir endurtökupróf | 7.900 |
Próftaki skal greiða kostnað vegna próftöku eða hluta hennar sem fram fer utan stofnunarinnar og lækka próftökugjöld skv. 1. mgr. til samræmis við þann kostnað.
12. gr. Gjöld vegna atvinnukafaraskírteina.
Vegna atvinnuskírteina kafara greiðast eftirtalin gjöld:
Kr. | |
1. Fyrir útgáfu atvinnukafaraskírteinis | 5.500 |
2. Fyrir endurnýjun atvinnukafaraskírteinis | 2.100 |
13. gr. Gjöld fyrir annað eftirlit og þjónustu.
Fyrir annað eftirlit og þjónustu, er köfunarmál varða, skal greiða þóknun samkvæmt reikningi.
VI. KAFLI Önnur gjöld o.fl.
14. gr. Önnur þjónusta.
Fyrir aðra þjónustu Siglingastofnunar Íslands skal greitt skv. reikningi stofnunarinnar.
Siglingastofnun Íslands framkvæmir skoðun á fjarskiptabúnaði smábáta a.m.k. einu sinni á hverju almanaksári. Til smábáta teljast opnir vélbátar 6 metra og lengri og fiskiskip með mestu lengd allt að 15 metrum, enda hafi þessi skip eingöngu VHF-talstöðvar, en ekki millibylgju- og/eða stuttbylgjustöðvar um borð og sigli á hafsvæði STK og A1, sbr. 2. gr. reglugerðar um fjarskiptabúnað og fjarskipti íslenskra skipa nr. 53/2000.
Gjöld fyrir skoðun skv. 2. gr. hjá bátum með VHF rásir eingöngu skulu vera á ári kr. 1.600.
15. gr. Þjónusta utan skrifstofutíma.
Gjöld samkvæmt reglugerð þessari miðast við að störf hinna fastráðnu starfsmanna Siglingastofnunar Íslands séu unnin á venjulegum skrifstofutíma.
Sé óskað eftir þjónustu utan þess tíma skal að auki greiða fyrir vinnu starfsmanns samkvæmt útseldum taxta stofnunarinnar.
16. gr. Innheimta.
Utan Reykjavíkur skulu gjöld samkvæmt 1. gr. innheimt af sýslumönnum.
Í Reykjavík skulu gjöldin innheimt af tollstjóra.
Gjöldin eru miðuð við skráningu 1. janúar og er gjalddagi og eindagi sá sami hinn 1. apríl sama árs.
Gjöld skv. öðrum greinum reglugerðarinnar skulu innheimt af Siglingastofnun Íslands eftir reikningum sem hún gefur út.
Innheimtumenn skulu skila gjöldum, sem þeir innheimta skv. reglugerð þessari í ríkissjóð.
17. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 28. gr. laga um eftirlit með skipum, nr. 35/1993 með síðari breytingum, 20. gr. laga um skráningu skipa nr. 115/1985 með síðari breytingum, 15. gr. laga um skipamælingar nr. 50/1970, 14. gr. laga um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa nr. 76/2001 og 6. gr. laga um köfun nr. 31/1996 staðfestist hér með til að öðlast gildi 1. janúar 2002 og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um gjöld fyrir skoðun, skráningu og mælingu skipa o.fl. nr. 106/2001 með breytingu nr. 491/2001 og gjaldskrá um eftirlit með köfunarbúnaði og aðra þjónustu varðandi köfunarmál nr. 528/2001.
Samgönguráðuneytinu, 18. júlí 2002.
Sturla Böðvarsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.