Fara beint í efnið

Prentað þann 22. ágúst 2026

Breytingareglugerð

527/2026

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 543/2024 um áburðarvörur.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 16. tölul., svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1421 frá 17. júlí 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1009 að því er varðar samræmismatsaðferðir fyrir ESB-áburðarvörur. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 194.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 19. maí 2026.

F. h. r.

Kolbeinn Árnason.

Donika Kolica.

B deild - Útgáfudagur: 20. maí 2026

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.