Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 22. júlí 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 6. júlí 2024
Sýnir breytingar gerðar 1. maí 2020 – 6. júlí 2024 af rg.nr. 401/2020 og 788/2024

511/2013

Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða og skilyrði til að hljóta starfsleyfi.

I. KAFLI Almenn ákvæði.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða semog hafaveitingu starfsleyfi landlæknisstarfsleyfa skv. 2. gr.

II. KAFLI Starfsleyfi.

2. gr. Starfsheiti.

Rétt til að kalla sig sjúkraliða og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.

Ekki er heimilt að ráða aðra en sjúkraliða til sérhæfðra umönnunar- og hjúkrunarstarfa nema áður hafi verið auglýst eftir sjúkraliðum. Hafi verið auglýst eftir sjúkraliðum á síðustu sex mánuðum án árangurs er þó ekki skylt að auglýsa nýja stöðu.

3. gr. Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis.

Leyfi skv. 2. gr. má veita þeim sem lokið hafa sjúkraliðanámi frá viðurkenndri menntastofnun sem starfar á grundvelli aðalnámskrár framhaldsskóla.

Einnig má veita starfsleyfi á grundvelli menntunar frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss. Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi sjúkraliða sem uppfyllir skilyrði tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með síðari breytingum, fer samkvæmt reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum og Sviss, nr. 461/2011, eða samkvæmt Norðurlandasamningi um sameiginlegan norrænan vinnumarkað fyrir ákveðnar heilbrigðisstéttir og dýralækna, nr. 36/1993, sbr. breytingu nr. 6/2001.

Þá er heimilt að veita starfsleyfi þeim sem lokið hafa sambærilegu prófi frá menntastofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.

UmsækjandiUm umsóknir umsækjenda um starfsleyfi sem sjúkraliði, skv. 2. gr., frá ríkiríkjum utan EES og Sviss sem Ísland hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun ogfer hæfisamkvæmt skalreglugerð meðalnr. annars leggja fram gögn483/2023 um ríkisfang,meðferð innihald náms og námslengd, ásamt prófskírteini, starfsleyfi ef starfsgreinin er löggilt í því landi sem umsækjandi kemur frá, fyrirhuguð störf hér á landi svo og önnur gögn og vottorð sem landlæknir telur nauðsynleg vegna útgáfu starfsleyfis.

 Áður en umsóknumsókna um starfsleyfi er tekin til efnislegrar meðferðar þarf eftir atvikum að liggja fyrir staðfest afrit umsóknar um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt undirrituðum ráðningarsamningi.

 Heimilt er að gera kröfu um að umsækjandi búi yfir kunnáttu í íslensku og hafi þekkingu á íslenskri heilbrigðislöggjöf svo og öðrum lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem talin eru nauðsynleg til að geta starfað sem sjúkraliði, einkum vegna öryggis og samskipta við sjúklinga.

 Hafi að mati landlæknis ekki verið sýnt fram á að nám umsækjanda uppfylli kröfursérfræðileyfi skv. 1lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. mgr.34/2012 erfrá heimiltumsækjendum frá krefjast þess að umsækjandi gangist undir prófríkjum sem sýniíslenska framríkið hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri hann búi yfir þeirri faglegu þekkingumenntun og hæfni sem krafist er af sjúkraliða.

 Landlæknir skal skipuleggja prófið í samráði við viðurkennda menntastofnun sem starfar á grundvelli aðalnámskrár framhaldsskólahæfi.

Starfsleyfi skv. 3. mgr. er gefið út við komu umsækjanda til starfa hér á landi.

4. gr. Umsagnir.

Áður en leyfi er veitt skv. 2. gr. á grundvelli menntunar utan Íslands skv. 3. mgr. 3. gr. skal landlæknir leita umsagnar hjá viðurkenndri menntastofnun sem starfar á grundvelli aðalnámskrár framhaldsskóla um það hvort umsækjandi uppfylli skilyrði um menntun skv. 1. mgr. 3. gr. fyrir útgáfu starfsleyfis.

Landlækni er heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.

III. KAFLI Réttindi og skyldur.

5. gr. Faglegar kröfur, starfssvið og ábyrgð.

Sjúkraliði skal sýna sjúklingi virðingu og sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og í samræmi við þær faglegu kröfur sem gerðar eru til stéttarinnar á hverjum tíma.

Sjúkraliða ber að þekkja skyldur sínar og virða siðareglur stéttarinnar, viðhalda þekkingu sinni og faglegri færni og tileinka sér nýjungar er varða starfið.

Sjúkraliði skal þekkja lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn og heilbrigðisþjónustu og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem við á.

Starfssvið sjúkraliða grundvallast á þeirri menntun og þjálfun sem sjúkraliði hefur öðlast í formlegu námi við viðurkennda menntastofnun og er skilyrði fyrir starfsleyfi skv. 3. gr. Starfssvið sjúkraliða felst í hjúkrunar- og umönnunarstörfum.

 Sérhæfður sjúkraliði hefur lokið a.m.k. 60 ECTS eininga formlegu fagdiplómanámi á kjörsviði hjúkrunar í viðurkenndum háskóla.
 Starfssvið sérhæfðs sjúkraliða, skal byggjast á viðbótarmenntun og þjálfun. Verkefni á starfssviði sérhæfðs sjúkraliða geta verið að gefa tilgreind lyf sem búið er að taka til, þ.m.t. undir húð og í vöðva, blóðtaka, uppsetning þvagleggja og æðaleggja og fleira.

 Sjúkraliði ber ábyrgð á störfum sínum við hjúkrun og umönnun í samræmi við menntun, þjálfun og færni sem hann hefur tileinkað sér. Við mat á faglegri færni og ábyrgð skal tekið tillit til viðbótarmenntunar sem sjúkraliði hefur aflað sér.

Sjúkraliði skal virða faglegar takmarkanir sínar og leita eftir aðstoð eða vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt er, svo sem ef hann telur sig ekki geta veitt honum viðeigandi heilbrigðisþjónustu.

6. gr. Upplýsingaskylda og færsla sjúkraskrár.

Um upplýsingaskyldu sjúkraliða gagnvart sjúklingi fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997.

Um skyldu sjúkraliða til að veita landlækni upplýsingar, meðal annars vegna eftirlits og til gerðar heilbrigðisskýrslna, fer samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.

Sjúkraliði skal, eftir því sem við á, færa sjúkraskrá samkvæmt ákvæðum laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim.

7. gr. Aðstoðarmenn og nemar.

Sjúkraliði ber ábyrgð á því að aðstoðarmenn og nemar, sem starfa undir hans stjórn, hafi næga hæfni og þekkingu og fái nauðsynlegar leiðbeiningar og tilsögn til að inna af hendi störf sem hann felur þeim.

8. gr. Trúnaður og þagnarskylda.

Sjúkraliði skal gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem hann kemst að í starfi sínu um heilsufar sjúklings, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þetta gildir ekki bjóði lög annað eða rökstudd ástæða er til þess að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar.

Samþykki sjúklings eða forráðamanns, ef við á, leysir sjúkraliða undan þagnarskyldu.

Þagnarskylda samkvæmt þessari grein nær ekki til atvika sem sjúkraliða ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Í þeim tilvikum ber sjúkraliða skylda til að koma upplýsingum um atvik á framfæri við þar til bær yfirvöld.

Um trúnaðar- og þagnarskyldu sjúkraliða gilda jafnframt ákvæði laga um réttindi sjúklinga, ákvæði laga um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.

IV. KAFLI Ýmis ákvæði.

9. gr. Gjaldtaka.

Um gjaldtöku vegna útgáfu starfsleyfis fer skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.

Um gjaldtöku vegna hvers konar umsýslu landlæknis vegna umsókna um starfsleyfi til viðbótar gjaldi skv. 1. mgr. og vegna prófa í faglegri þekkingu og færni fer samkvæmt reglugerð um gjaldtöku vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðisstarfsmanna, nr. 951/2012.

10. gr. Almenn ákvæði.

Ákvæði laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, svo og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli gilda eftir því sem við á um sjúkraliða.

10. gr. a Gildi eldri leyfa. 

 Þeir sem hlotið hafa starfsleyfi sem sjúkraliðar samkvæmt lögum nr. 58/1984, um sjúkraliða, með síðari breytingum, eða reglugerð nr. 897/2001, um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða, með síðari breytingum, halda þeim réttindum óskertum.

 11. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur brott reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða, nr. 897/2001, með síðari breytingum.

 Ákvæði til bráðabirgða.

Velferðarráðuneytinu,Þrátt 22fyrir ákvæði 3. gr. er landlækni heimilt til 1. maí 2013.2021 að veita þeim starfsleyfi sem hafa menntun sem sjúkraliðar samkvæmt lögum nr. 58/1984, um sjúkraliða, með síðari breytingum, eða samkvæmt reglugerð nr. 897/2001, um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða, með síðari breytingum, og hafa viðhaldið kunnáttu sinni með því að hafa starfað við greinina frá því að framangreindu námi lauk.

 Guðbjartur Hannesson. 

 Margrét Björnsdóttir. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.