Prentað þann 18. nóv. 2024
788/2024
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða og skilyrði til að hljóta starfsleyfi, nr. 511/2013.
1. gr.
1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Reglugerð þessi gildir um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða og veitingu starfsleyfa skv. 2. gr.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:
- Á eftir orðunum "öðrum EES-ríkjum" í 2. mgr. kemur: og Sviss
- 4. mgr. orðast svo: Um umsóknir umsækjenda um starfsleyfi sem sjúkraliði, skv. 2. gr., frá ríkjum utan EES og Sviss sem Ísland hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun fer samkvæmt reglugerð nr. 483/2023 um meðferð umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi skv. lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012 frá umsækjendum frá ríkjum sem íslenska ríkið hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi.
- 5.-8. mgr. falla brott.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:
- Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Starfssvið sjúkraliða grundvallast á þeirri menntun og þjálfun sem sjúkraliði hefur öðlast í formlegu námi við viðurkennda menntastofnun og er skilyrði fyrir starfsleyfi skv. 3. gr. Starfssvið sjúkraliða felst í hjúkrunar- og umönnunarstörfum. - Á eftir orðunum "mat á faglegri færni" í 4. mgr. 5. gr. kemur: og ábyrgð
- Á undan 5. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Sérhæfður sjúkraliði hefur lokið a.m.k. 60 ECTS eininga formlegu fagdiplómanámi á kjörsviði hjúkrunar í viðurkenndum háskóla.
Starfssvið sérhæfðs sjúkraliða, skal byggjast á viðbótarmenntun og þjálfun. Verkefni á starfssviði sérhæfðs sjúkraliða geta verið að gefa tilgreind lyf sem búið er að taka til, þ.m.t. undir húð og í vöðva, blóðtaka, uppsetning þvagleggja og æðaleggja og fleira. - Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Faglegar kröfur, starfssvið og ábyrgð.
4. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 5., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012 og öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 4. júlí 2024.
Willum Þór Þórsson.
Ásta Valdimarsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.