Prentað þann 14. nóv. 2024
491/2023
Reglugerð um (16.) breytingu á reglugerð nr. 1255/2018 um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.
1. gr.
Í stað dagsetningarinnar "31. maí 2023" í 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 31. október 2023.
2. gr.
Í stað tímabilsins "1. janúar til og með 31. maí 2023" í 9. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. janúar 2019 til og með 31. október 2023.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 19. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, sbr. einnig 29. gr. með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 5. maí 2023.
Willum Þór Þórsson.
Arnar Bergþórsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.