Fara beint í efnið

Prentað þann 30. okt. 2026

Breytingareglugerð

489/2025

Reglugerð um breytingu á reglugerð fyrir talnagetraunir Íslenskrar getspár, nr. 1170/2012.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Hvarvetna þar sem heitið "Lottó 5/42" kemur fyrir í reglugerðinni kemur: Lottó 5/45.

2. gr.

Hvarvetna þar sem "1-42" kemur fyrir í reglugerðinni kemur: 1-45.

3. gr.

Í stað orðanna "með 42 kúlum" í 4. málsl. 2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur: með 45 kúlum.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað "54,5%" í 1. og 2. málsl. a-liðar kemur: 57,0%.
  2. Í stað "2,5%" í 1. og 2. málsl. b-liðar kemur: 2,0%.
  3. Í stað "13,0%" í c-lið kemur: 10,0%.
  4. Í stað "5,0%" í d-lið kemur: 4,0%.
  5. Í stað "8,0%" í f-lið kemur: 10,0%.

5. gr.

1. tölul. 13. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

  1. Lottó 5/45:
Fimm réttar aðaltölur 1:1.221.759
Fjórar réttar aðaltölur og bónustala 1:244.352
Fjórar réttar aðaltölur 1:6.265
Þrjár réttar aðaltölur og bónustala 1:3.133
Þrjár réttar aðaltölur 1:165
Tvær réttar aðaltölur og bónustala 1:165

6. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í lögum um talnagetraunir nr. 26/1986, öðlast gildi 18. maí 2025.

Dómsmálaráðuneytinu, 23. apríl 2025.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.

Bryndís Helgadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.