Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 20. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 30. mars 2023

1170/2012

Reglugerð fyrir talnagetraunir Íslenskrar getspár.

I. KAFLI Leyfishafi.

1. gr. Leyfishafi.

Íslensk getspá er félag í eigu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) og Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ), sem stofnað er til að starfrækja talnagetraunir og/eða bókstafagetraunir í þeim tilgangi að afla fjár til eflingar íþróttum á vegum áhugamanna um íþróttir í landinu í félögum innan ÍSÍ og UMFÍ og til að greiða stofnkostnað við íbúðarhúsnæði fyrir öryrkja á vegum ÖBÍ eða til að standa undir annarri starfsemi þess í þágu öryrkja.

Heimili félagsins, aðalskrifstofa og varnarþing er í Reykjavík.

II. KAFLI Tegundir.

2. gr. Tegundir talnagetrauna.

Félagið starfrækir talnagetraunir (lottó) undir heitunum Lottó 5/42, Jóker, Vikinglottó (Lottó 6/48 + 1/5 og EuroJackpot (5/50 + 2/12).

Vikinglottó er starfrækt í samvinnu við eftirgreind talnagetraunafyrirtæki: AB Svenska Spel, Svíþjóð, Norsk Tipping A/S, Noregi, OY Veikkaus ab, Finnlandi, Danske Spil AS, Danmörku, AS Eesti Loto, Eistlandi, OlifejaLotto, Litháen, Latvia Loto, Lettlandi, Loterija Slovenije, Slóveníu og Loterie Nationale, Belgíu.

EuroJackpot er starfrækt í samvinnu við eftirgreind fyrirtæki:AB Svenska Spel, Svíþjóð, Norsk Tipping A/S, Noregi, OY Veikkaus ab, Finnlandi, Danske Spil AS, Danmörku, AS Eesti Loto, Eistlandi, OlifejaLotto, Litháen, Latvia Loto, Lettlandi, Bremer Toto und Lotto GmbH, Deutsche Klassenlotterie Berlin, Land Brandenburg Lotto GmbH, Lotterie Treuhandgesellschaft mbH Hessen, Lotterie-Treuhandgesellschaft mbH Thüringen, Lotto Hamburg GmbH, Lotto Rheinland-Pfalz GmbH, Lotto-Toto GmbH Sachsen-Anhalt, NordwestLotto Schleswig-Holstein GmbH & Co.KG, Saarland-Sporttoto GmbH, Sächsische Lotto-GmbH, Staatliche Lotterieverwaltung in Bayern, StaatlicheToto-Lotto GmbH Baden-Württemberg, Toto-Lotto Niedersachsen GmbH, Verwaltungsgesellschaft Lotto und Toto in Mecklenburg-Vorpommern mbH, Westdeutsche Lotterie GmbH & Co.OHG, Þýskalandi, De Lotto, Hollandi, Loterija Slovenije, Slóveníu, Sisal, Ítalíu, Tipos National Lottery, Slóvakíu, Sazka Saskova Kancelar a.s., Tékklandi, Szerencsejatec Zrt., Ungverjalandi, Once, Spáni, Totalizator Sportowy, Póllandi og Hrvatska Lutrija, Króatíu.

III. KAFLI Leikspjöld, útfylling þeirra og greiðsla.

3. gr. Leikspjöld.

Íslensk getspá gefur út og dreifir leikspjöldum til þátttöku í talnagetraununum. Leikspjöld má einnig nálgast með rafrænum hætti í gegnum tölvu, síma eða gagnvirkt sjónvarp.

Á hverju leikspjaldi Lottó 5/42 eru 10 leikir (raðir), sem merktir eru bókstöfunum A, B, C, D, E, F, G, H, I og J, og er hver leikur með tölunum 1-42. Getur hver þátttakandi tekið þátt í einum til tíu leikjum á hverju leikspjaldi. Á leikspjöldum fyrir Lottó 5/42 er sérstakur reitur sem þátttakendur merkja í ef þeir vilja taka þátt í Jóker. Þátttakendur geta valið 5 tölur úr tölunum 0-9 til að mynda Jókertölur sínar.

Á hverju leikspjaldi Vikinglottós eru 10 leikir (raðir), sem merktir eru bókstöfunum A, B, C, D, E, F, G, H, I og J, og er hver leikur með tölunum 1‑48 auk Víkingatalna 1-5. Getur hver þátttakandi tekið þátt í einum til tíu leikjum á hverju leikspjaldi. Á leikspjöldum fyrir Vikinglottó er sérstakur reitur sem þátttakendur merkja í ef þeir vilja taka þátt í Jóker. Þátttakendur geta valið 5 tölur úr tölunum 0-9 til að mynda Jókertölur sínar.

Á hverju leikspjaldi EuroJackpot eru 5 leikir (raðir), sem merktir eru bókstöfunum A, B, C, D og E, og er hver leikur með tölunum 1-50 auk stjörnutalna 1-12. Getur hver þátttakandi tekið þátt í einum til fimm leikjum á hverju leikspjaldi. Á leikspjöldum fyrir EuroJackpot er sérstakur reitur sem þátttakendur merkja í ef þeir vilja taka þátt í Jóker. Þátttakendur geta valið 5 tölur úr tölunum 0-9 til að mynda Jókertölur sínar.

Á sölustöðum skulu vera leiðbeiningar um þátttöku í viðkomandi talnagetraun. Þar skal og vera hvatning til þátttakenda að rita nafn sitt á þátttökukvittun í öryggisskyni.

4. gr. Útfylling.

Leikirnir felast í því að þátttakandi strikar lóðrétt með blýanti eða dökkum penna (ekki rauðum lit) í reiti fimm mismunandi talna í Lottó 5/42 og EuroJackpot en í reiti sex mismunandi talna í Vikinglottó, sem hann velur af þeim tölum sem tilgreindar eru í hverri röð. Auk þess velur þátttakandi í Vikinglottó eina Víkingatölu á bilinu 1-5. Í EuroJackpot strikar þátttakandi lóðrétt með blýanti eða dökkum penna í reiti fimm mismunandi talna 5/50 og auk þess velur þátttakandi tvær stjörnutölur á bilinu 1 - 12. Ef þátttaka fer fram með rafrænum hætti, í gegnum tölvu, síma eða gagnvirkt sjónvarp, velur þátttakandi tölur á tilheyrandi skjá. Geri þátttakandi villu skal hann ógilda þá röð með því að strika lóðrétt yfir, eða velja með því að ýta (smella) á ef um rafrænt leikspjald er að ræða, þar til gerðan ógildingarreit viðkomandi raðar, og gildir þá ekki sú röð. Þátttakandi í Jóker ritar, eða velur með því að ýta (smella) á ef um rafrænt leikspjald er að ræða, þær fimm tölur sem hann velur úr tölunum 0-9 í þar til gerða reiti á leikspjaldinu.

Að loknu vali á tölum samkvæmt 1. mgr. er leikspjaldið afhent söluaðila sem rennir því í sölukassa sem tengdur er tölvukerfi Íslenskrar getspár og skráir sjálfvirkt valdar Lottótölur. Jókertölur sem valdar eru á leikspjaldinu skráir söluaðili þó inn í tölvukerfið. Þátttakandi getur einnig tilkynnt þátttöku sína með því að skýra söluaðila munnlega frá vali sínu á tölum og þá sér söluaðili um skráningu þeirra talna í tölvukerfi Íslenskrar getspár. Þá getur þátttakandi óskað eftir að tölur hans verði valdar af handahófi í sölukassa. Þegar um rafræna þátttöku er að ræða staðfestir þátttakandi val sitt með því að ýta (smella) á "staðfesta" eða sambærilegan lykil og fara upplýsingarnar þá með rafrænum hætti til Íslenskrar getspár.

Söluaðili skal síðan afhenda þátttakanda þátttökukvittun ásamt viðkomandi leikspjaldi gegn greiðslu. Á kvittun skal koma fram bókstafur þeirrar eða þeirra raða sem þátttaka er bundin við og þær tölur, er þátttakandi hefur valið í hverri röð, svo og Jókertölur ef þær eru valdar. Þá skal koma fram heildartala þeirrar fjárhæðar, sem greidd hefur verið, dagsetning útdráttar eða gildistími, ef tekið er þátt í fleiri en einni leikviku, og öryggisnúmer, sem auðkennir viðkomandi afgreiðslu.

Þátttakandi skal ganga úr skugga um að samræmi sé milli kvittunar og merkja á leikspjaldi, eða að hún sé í samræmi við munnleg fyrirmæli hans, hafi hann gefið tölur sínar upp munnlega. Þá ber þátttakanda að ganga úr skugga um að þátttökukvittun greini útdráttardag(a) eða gildistíma sem þátttaka er bundin við.

5. gr. Verð, greiðsla og þátttökukvittun.

Verð fyrir hvern leik (röð) í Lottó 5/42 er kr. 150, Jóker kr. 200, í Vikinglottó kr. 115 og í EuroJackpot 310 kr. Aðeins er unnt að gerast þátttakandi hjá söluaðilum Íslenskrar getspár eða með rafrænum hætti, sbr. 1. mgr. 3. gr.

Þegar greiðsla er innt af hendi með rafrænum hætti er hún tekin út af spilareikningi þátttakanda. Þegar þátttakandi leggur inn á spilareikning sinn með rafrænum hætti, leitar móðurtölva Íslenskrar getspár heimildar hjá viðkomandi kortafyrirtæki eða banka og fær staðfestingu á að viðkomandi greiðslukort/bankareikningur sé í gildi og heimild sé fyrir úttekt. Þegar greiðsla hefur verið staðfest getur þátttakandi prentað út eigin kvittun eða óskað eftir því að fá hana senda í pósti eða tölvupósti. Upplýsingar um greiðslu eru færðar á kvittunina.

Stjórn Íslenskrar getspár er heimilt að ákveða að þátttakanda, sem keypt hefur þátttökukvittun sem á eru 10 raðir eða fleiri, sé látin í té án greiðslu, sem kaupauki, þátttökukvittun sem á er 1-ein-röð.

Þátttakandi getur gert skriflegan samning um kaup á leikjum Íslenskrar getspár með því að gerast áskrifandi og greiða með greiðslukorti. Gildir sá samningur þar til honum er sagt upp eða ef samningur viðkomandi við greiðslukortafyrirtækið fellur úr gildi. Áskriftarsamningi fylgir kaupauki, þannig að þátttakandi greiðir einungis fyrir fjórar vikur í hverjum mánuði, þó svo að vikurnar séu fimm í einstökum mánuðum.

Leikspjald fyrir Lottó 5/42, Jóker, Vikinglottó og EuroJackpot gildir aldrei sem kvittun. Þátttakandi getur notað leikspjald fyrir Lottó 5/42, Jóker og Vikinglottó aftur eða látið það gilda í 2, 5 eða 10 leikvikur, að eigin vali, ef hann óskar eftir óbreyttu talnavali, með því að strika lóðrétt yfir viðkomandi reit á leikspjaldi um fjölda vikna. Sama á við um EuroJackpot en þar gildir leikspjaldið í 2, 6 eða 10 skipti.

Þátttaka í talnagetraunum fer fram í samræmi við það er þátttökukvittun greinir. Telji þátttakandi að þátttökukvittun sé ekki í samræmi við leikspjald eða þær munnlegu upplýsingar er hann gaf skal hann bera fram kvörtun sína þegar í stað. Að öðrum kosti verður litið svo á að hann hafi með móttöku þátttökukvittunar samþykkt þátttöku í samræmi við þær tölur er kvittunin greinir. Þátttakandi ber einn ábyrgð á þátttökukvittun sinni og á enga kröfu til vinnings nema gegn framvísun hennar. Íslensk getspá ber ekki ábyrgð á villu í prentun kvittunar og ábyrgð félagsins á rangri kvittun er takmörkuð við ógildingarverðmæti hennar samkvæmt 7. mgr. Félagið ber ekki ábyrgð á stolnum eða glötuðum kvittunum.

Þátttökukvittun má ógilda með því að skila henni aftur til söluaðila, enda sé það gert samdægurs og sala fór fram og það tímanlega að unnt sé að ljúka ógildingu á innfærslu hennar í tölvukerfi Íslenskrar getspár, áður en útdráttur fer fram. Sé þátttökukvittun ógilt á greiðandi rétt á endurgreiðslu á sömu fjárhæð og hann greiddi. Þeir sem taka þátt með rafrænum hætti geta einnig óskað eftir því að fá endurgreiðslu og leggst þá fjárhæðin á sama reikning og notaður var til þess að greiða fyrir þátttöku í leiknum.

Þátttökukvittun er því aðeins gild að notað sé þar til gert eyðublað sem gefið er út af Íslenskri getspá og að hún hafi verið gefin út af söluaðila viðurkenndum af stjórn félagsins með áritun úr sölukassa tengdum tölvukerfi þess. Þátttökukvittun má ekki vera árituð á framhlið, brotin eða skemmd með einhverjum hætti, þannig að hætta sé á að hún verði ekki læsileg fyrir tölvukerfi félagsins eða fullnægi ekki kröfum þess á annan hátt. Þegar þannig er ástatt getur félagið hafnað þátttökukvittuninni. Þegar um rafræna þátttöku er að ræða eru kvittanir geymdar miðlægt í móðurtölvu Íslenskrar getspár. Þátttakendur sem taka þátt með rafrænum hætti geta prentað út eigin kvittun eða óskað eftir því að fá hana senda í pósti eða tölvupósti. Ef mismunur er á þátttökukvittun í móðurtölvu og prentaðri kvittun þá gildir sú í móðurtölvunni.

6. gr. Kerfisleikspjöld.

Heimilt er að gera sérstök leikspjöld fyrir þá sem óska þess að nota kerfi við talnagetraunir. Í Lottó 5/42 skulu leikspjöld þessi vera fyrir 6, 7, 8, 9 eða 10 talnamöguleika og samsvara tölur þessar 6, 21, 56, 126 eða 252 mismunandi fimm stafa töluröðum (leikjum) þeirra talna sem valdar eru. Kerfisleikspjald skal þátttakandi fylla út á þann veg að hann strikar lóðrétt í reiti þeirra talna er hann velur úr tölunum 1-42 og staðfestir fjölda þeirra (6, 7, 8, 9 eða 10) með því að merkja aftan við viðkomandi tölur á leikspjaldinu.

Í Vikinglottó skulu leikspjöld þessi vera fyrir 7, 8, 9 eða 10 talnamöguleika og samsvara tölur þessar 7, 28, 84 eða 210 mismunandi 6 stafa talnaröðum þeirra talna sem valdar eru. Kerfisleikspjald skal þátttakandi fylla út á þann veg að hann strikar lóðrétt í reiti þeirra talna er hann velur úr tölunum 1-48 auk einnar Víkingatölu frá 1-5 og staðfestir fjölda þeirra (7, 8, 9 eða 10) með því að merkja aftan við viðkomandi tölur á leikspjaldinu.

Kerfisleikspjald skal þátttakandi fylla út á þann veg að hann strikar lóðrétt í reiti þeirra talna er hann velur úr tölunum 1-50 auk tveggja stjörnutalna frá 1-12 og staðfestir fjölda þeirra (6, 7, 8, 9 eða 10) með því að merkja aftan við viðkomandi tölur á leikspjaldinu.

Í framangreindum kerfum ákvarðast verð af fjölda raða og verði fyrir hvern leik (röð) sbr. 1. mgr. 5. gr.

7. gr. Útdráttur.

Útdrættir í talnagetraununum Lotto 5/42 og Vikinglottó fara að jafnaði fram einu sinni í viku og í EuroJackpot að jafnaði tvisvar sinnum í viku samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar Íslenskrar getspár en í Jóker samtímis útdrætti í Lottó 5/42, Vikinglottó og EuroJackpot.

Útdráttur vinninga í Lottó 5/42 fer fram opinberlega á laugardegi eða samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar Íslenskrar getspár að viðstöddum fulltrúa hennar og skipuðum eftirlitsmanni samkvæmt 1. mgr. 16. gr. Útdráttur vinninga fer þannig fram að í þar til gerðri útdráttarvél eru valdar fimm vinningstölur, aðaltölur, af tölunum 1-42. Því næst er valin bónustala af þeim tölum sem þá eru eftir. Verði bilun í þar til gerðri vél, sem velur vinningstölur og síðan bónustölu, skal dregið úr þar til gerðum poka með 42 kúlum með tölunum 1-42, fyrst fimm vinningstölur og síðan bónustölu, af þeim tölum sem þá eru eftir. Áður en slíkur útdráttur fer fram skal gengið úr skugga um að í pokanum séu kúlur merktar tölunum frá 1-42.

Niðurstöður útdráttar og aðrar upplýsingar um framkvæmd hans skal færa í sérstaka gerðabók og undirrita af fulltrúa stjórnarinnar og eftirlitsmanninum.

Samtímis útdrætti í Lottó 5/42 fer fram útdráttur í Jóker tengdum þeirri talnagetraun, með Jóker útdráttarvél sem varðveitt er í innsigluðum kassa, með eftirfarandi hætti. Útdráttur fer þannig fram að fimm hjól, hvert með tölunum 0-9, eru sett í gang og við stöðvun hjólanna koma fram hinar fimm útdregnu tölur. Tölurnar, í þeirri röð sem þær birtast, mynda Jókertölurnar. Verði bilun í einu eða fleirum af hinum fimm hjólum með tölunum 0-9 skal dregið úr einum eða allt að fimm, eftir því sem við á, þar til gerðum poka þar sem kúlur eru merktar tölunum 0-9. Áður en slíkur útdráttur fer fram skal gengið úr skugga um að í pokanum séu kúlurnar merktar tölunum 0-9.

Útdráttur í Vikinglottó fer fram á hverjum miðvikudegi í heimalandi einhvers samstarfsaðila, undir eftirliti þarlendra yfirvalda, samkvæmt reglum sem samþykktar eru af opinberum eftirlitsaðilum samstarfsaðilanna, hér á landi af dómsmálaráðuneytinu. Þegar dráttur fer fram hér á landi fer um eftirlitið í samræmi við 2. mgr.

Aðalútdrátturinn fer fram með þeim hætti að valdar eru sex aðaltölur af tölunum 1-48 og ein Víkingatala úr talnaröð 1-5.

Útdráttur í Jóker sem tengdur er Vikinglottó fer fram á miðvikudögum, með Jóker útdráttarvél sem varðveitt er í innsigluðum kassa, með eftirfarandi hætti:

  1. Fimmtán mínútum eftir lokun sölukerfis ræsir starfsmaður Íslenskrar getspár útdrátt í vélinni. Útdrátturinn fer fram með sama hætti og lýst er í 4. mgr. og að viðstöddum eftirlitsmanni skv. 1. mgr. 16. gr.
  2. Útdrátturinn er tekinn upp.

Útdráttur í EuroJackpot fer fram á hverjum þriðjudegi og föstudegi í heimalandi einhvers samstarfsaðila, undir eftirliti þarlendra yfirvalda, samkvæmt reglum sem samþykktar eru af opinberum eftirlitsaðilum samstarfsaðilanna, hér á landi af dómsmálaráðuneytinu. Þegar dráttur fer fram hér á landi fer um eftirlitið í samræmi við 2. mgr. Aðalútdrátturinn fer fram með þeim hætti að valdar eru fimm aðaltölur af tölunum 1-50 og því næst eru valdar 2 stjörnutölur úr talnaröð 1-12.

Útdráttur í Jóker sem tengdur er EuroJackpot fer fram á þriðjudögum og föstudögum, með Jóker útdráttarvél sem varðveitt er í innsigluðum kassa, með eftirfarandi hætti:

  1. Fimmtán mínútum eftir lokun sölukerfis ræsir starfsmaður Íslenskrar getspár útdrátt í vélinni. Útdrátturinn fer fram með sama hætti og lýst er í 7. mgr. og að viðstöddum eftirlitsmanni skv. 1. mgr. 16. gr.
  2. Útdrátturinn er tekinn upp.

Öll vinnsla í tölvukerfi Íslenskrar getspár hvað varðar Lottó 5/42 og Jóker skal falla niður frá því 15 mínútum áður en útdráttur á að fara fram þar til útdrætti er að fullu lokið. Að því er varðar Vikinglottó skal vinnsla í tölvukerfinu falla niður einni klukkustund áður en útdráttur á að fara fram þar til útdrætti er að fullu lokið. Að því er varðar EuroJackpot skal vinnsla í tölvukerfinu falla niður 2 klukkustundum áður en útdráttur á að fara fram þar til útdrætti er að fullu lokið.

Beri útdráttardag upp á hátíðisdag er heimilt að framkvæma útdrátt næsta virkan dag á undan, eða á öðrum degi sem dómsmálaráðuneytið samþykkir.

Vinningstölur fyrir Lottó 5/42, Jóker, Vikinglottó og EuroJackpot skulu birtar í fjölmiðlum.

IV. KAFLI Vinningar.

8. gr. Almennt um vinninga.

Þeir sem hafa þátttökukvittun með tölum þeim sem valdar hafa verið, annaðhvort allar eða hluta þeirra í sama leik (röð), án tillits til röðunar þeirra sbr. þó 10. gr., fá vinning í samræmi við ákvæði í 9.-12. gr.

Til vinninga í Lottó 5/42 skal verja 45% af heildarsöluverði þátttökukvittana hverrar leikviku, þar með talið andvirði þátttökukvittana sem látnar eru þátttakendum í té sem kaupauki án endurgjalds.

Til vinninga í Vikinglottó skal verja 40% af heildarsöluverði þátttökukvittana hverrar leikviku, þar með talið andvirði þátttökukvittana sem látnar eru þátttakendum í té sem kaupauki án endurgjalds.

Til vinninga í EuroJackpot skal verja 50% af heildarsöluverði þátttökukvittana hvers útdráttar, þar með talið andvirði þátttökukvittana sem látnar eru þátttakendum í té sem kaupauki án endurgjalds.

Vinningar í Lottó 5/42, Vikinglottó og EuroJackpot skulu færðir niður í næsta heilan tug króna. Mismunur sem myndast með því skal yfirfærður til 1. vinnings einu sinni til tvisvar á ári eftir nánari ákvörðun stjórnar.

Stjórn Íslenskrar getspár er heimilt að leggja viðbótarfé frá fyrirtækinu til vinninga í Lottó 5/42 og Vikinglottó í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar og við sérstök tækifæri þar sem lagt er fram fé frá fyrirtækinu til vinninga. Stjórnin skal leita samþykkis dómsmálaráðuneytisins fyrir slíkum framlögum og fyrirkomulagi útdráttar.

9. gr. Lottó 5/42.

Vinningar í Lottó 5/42 skiptast þannig:

  1. 54,5% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa allar 5 aðaltölur réttar. Heimilt er, ef 54,5% af heildarvinningsfjárhæð nær ekki 5 milljónum króna, að bæta við fyrsta vinningsflokk fjárhæð sem þarf til að vinningsfjárhæðin fari yfir 5 milljónir króna. Viðbót þessi skal hlaupa á 50.000 krónum;
  2. 2,5% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 4 aðaltölur réttar og auk þess rétta bónustölu. Heimilt er, ef 2,5% af heildarvinningsfjárhæð nær ekki 300.000 krónum, að bæta við þennan vinningsflokk fjárhæð sem þarf til að vinningsfjárhæðin fari yfir 300.000 krónur. Viðbót þessi skal hlaupa á 10.000 krónum;
  3. 13,0% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 4 aðaltölur réttar;
  4. 5,0% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 3 aðaltölur réttar og auk þess rétta bónustölu.
  5. 17,0% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 3 aðaltölur réttar.
  6. 8,0% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 2 aðaltölur réttar og auk þess rétta bónustölu.

Komi í ljós við útdrátt í Lottó 5/42 að:

  1. enginn þátttakandi hafi allar 5 aðaltölur réttar skal vinningsfjárhæð þess flokks, án viðbótar samkvæmt a-lið 1. mgr., yfirfærast til næstu leikviku og koma í hlut þeirra er fá allar fimm aðaltölur réttar í þeirri leikviku. Verði heldur ekki neinn þátttakandi með allar aðaltölur réttar í þeirri viku flyst vinningsfjárhæðin áfram til þar næstu viku o.s.frv.;
  2. enginn þátttakandi hafi 4 aðaltölur réttar auk bónustölu skal vinningsfjárhæð þess flokks yfirfærast til næstu leikviku og koma í hlut þeirra er fá 4 aðaltölur réttar auk bónustölu í þeirri leikviku. Verði heldur ekki neinn þátttakandi með 4 aðaltölur réttar auk bónustölu í þeirri leikviku flyst vinningsupphæðin áfram til þar næstu viku o.s.frv.;
  3. enginn þátttakandi hafi fengið 4 aðaltölur réttar yfirfærist vinningur þess flokks til þeirra er fá vinning fyrir þrjár aðaltölur réttar.

10. gr. Jóker.

Vinningar ráðast af því hve margar útdregnar tölur þátttakandi fær miðað við rétta röð útdreginna talna þannig að:

  1. fyrir 5 tölur réttar greiðast kr. 2.000.000;
  2. fyrir 4 fyrstu eða 4 síðustu tölur réttar greiðast kr. 100.000;
  3. fyrir 3 fyrstu eða 3 síðustu tölur réttar greiðast kr. 10.000;
  4. fyrir 2 fyrstu eða 2 síðustu tölur réttar greiðast kr. 2.000.

11. gr. Vikinglottó.

Vinningar í Vikinglottó skiptast þannig:

  1. Fyrsti vinningur er sameiginlegur hjá þátttökuaðilum, sbr. 2. gr., og skiptist jafnt á milli þeirra sem hafa 6 aðaltölur réttar og Víkingatöluna. Greiðir hvert talnagetraunafyrirtæki 0,130 evrur af andvirði hvers selds leiks til þessa vinningsflokks. Verðmæti hans í íslenskum krónum ákvarðast af kaupgengi evru á útdráttardegi.
  2. Annar vinningur er sameiginlegur hjá þátttökuaðilum, sbr. 2. gr., og skiptist jafnt á milli þeirra sem hafa 6 aðaltölur réttar. Greiðir hvert talnagetraunafyrirtæki 0,013 evrur af andvirði hvers selds leiks til þessa vinningsflokks. Verðmæti hans í íslenskum krónum ákvarðast af kaupgengi evru á útdráttardegi.
  3. 0,042 evrur renna í jöfnunarsjóð sem hefur það hlutverk að tryggja að 1. vinningur verði aldrei undir 3 milljónum evra. Auk þess renna í jöfnunarsjóðinn auramismunur og ósóttir vinningar úr vinningsflokkum 1 og 2.
  4. Til annarra vinninga renna 45% af heildarsölu hverrar leikviku hér á landi, að frádreginni greiðslu Íslenskrar getspár til vinninga, sbr. a-, b- og c-lið, og skiptast í vinningsflokka í eftirgreindum hlutföllum:

    1. 28% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 5 aðaltölur réttar og auk þess rétta eina Víkingatölu.
    2. 7% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 5 aðaltölur réttar.
    3. 12% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 4 aðaltölur réttar.
    4. 53% skiptast jafnt á milli þeirra sem hafa 3 aðaltölur réttar.

Komi í ljós við útdrátt í Vikinglottó að:

  1. enginn þátttakandi hafi allar 6 aðaltölur réttar auk Víkingatölu skal vinningsfjárhæð þess flokks yfirfærast til næstu leikviku og koma í hlut þeirra er fá allar sex aðaltölur réttar auk Víkingatölu í þeirri leikviku. Verði heldur ekki neinn þátttakandi með allar aðaltölur réttar í þeirri leikviku flyst vinningsfjárhæðin áfram til þar næstu viku o.s.frv. Fari vinningsfjárhæð fyrir þennan vinningsflokk yfir 25 milljónir evra skal umframfjárhæðin fara í 2. vinningsflokk í næsta útdrætti;
  2. enginn þátttakandi hafi allar 6 aðaltölur réttar skal vinningsfjárhæð þess flokks yfirfærast til næstu leikviku og koma í hlut þeirra sem fá allar sex aðaltölurnar réttar í þeirri leikviku. Verði heldur ekki neinn þátttakandi með allar aðaltölur réttar í þeirri leikviku flyst vinningsfjárhæðin áfram til þar næstu viku o.s.frv. Fari vinningsfjárhæð fyrir þennan vinningsflokk yfir 25 milljónir evra skal umframfjárhæðin fara í 1. vinningsflokk í næsta útdrætti;
  3. enginn þátttakandi hafi 5 aðaltölur réttar auk Víkingatölu skal vinningsfjárhæð þess flokks yfirfærast til næstu leikviku og koma í hlut þeirra er fá 5 aðaltölur réttar auk Víkingatölu í þeirri leikviku. Verði heldur ekki neinn þátttakandi með 5 aðaltölur réttar auk Víkingatölu í þeirri leikviku flyst vinningsfjárhæðin áfram til þar næstu viku o.s.frv.;
  4. enginn þátttakandi hafi 5 aðaltölur réttar skal vinningsfjárhæð þess flokks yfirfærast til næstu leikviku og koma í hlut þeirra er fá 5 aðaltölur réttar í þeirri leikviku. Verði enginn þátttakandi með 5 aðaltölur réttar í þeirri leikviku flyst vinningsfjárhæðin áfram til þar næstu viku o.s.frv.;
  5. enginn þátttakandi hafi 4 aðaltölur réttar skal vinningsfjárhæð þess flokks yfirfærast til næstu leikviku og koma í hlut þeirra er fá 4 aðaltölur réttar í þeirri leikviku. Verði enginn þátttakandi með 4 aðaltölur réttar í þeirri leikviku flyst vinningsfjárhæðin áfram til þar næstu viku o.s.frv.;
  6. enginn þátttakandi hafi 3 aðaltölur réttar skal vinningsfjárhæð þess flokks yfirfærast til næstu leikviku og koma í hlut þeirra er fá 3 aðaltölur réttar í þeirri leikviku. Verði enginn þátttakandi með 3 aðaltölur réttar í þeirri leikviku flyst vinningsfjárhæðin áfram til þar næstu viku o.s.frv.

Þátttakendur hljóta eingöngu vinning í samræmi við hæsta fjölda talna í hverri röð, þ.e. sá sem hlýtur vinning samkvæmt a-lið 1. mgr. hlýtur ekki vinning samkvæmt b-lið 1. mgr.

Fyrir hvern útdrátt verður tryggð útborgun úr 1. vinningsflokki að lágmarki 3 milljónir evra. Ef einn eða fleiri vinningar í 1. vinningsflokki og regluleg útborgun þess vinningsflokks er lægri en tryggða útborgunin, mun útborgun þess vinningsflokks vera að fjárhæð 3 milljónir evra. Ef þar er enginn vinningshafi verður útborgun 1. vinningsflokks í næsta útdrætti aukin um það sem samsvarar tryggðu útborguninni.

Frávik vinninga á sér stað þegar fjárhæð vinninga eða stærð vinningspottar í sameiginlegum lægri vinningsflokki er hærri en í næsta sameiginlegum hærri vinningsflokki. Frávik geta aðeins átt sér stað í sameiginlegum vinningsflokkum 1 og 2 ef:

  1. vinningspottur í 2. vinningsflokki er stærri en vinningspottur í 1. vinningsflokki en þá skal leggja saman vinningspotta beggja vinningsflokka og deila í fjárhæðina með tveimur til að finna út vinningsfjárhæðina;
  2. fjárhæð vinnings á hvern vinningshafa er hærri í 2. vinningsflokki en í 1. vinningsflokki en þá skal leggja saman vinningsfjárhæðir beggja vinningsflokka og deila með fjölda vinningshafa til að finna út vinningsfjárhæðina.

Fjárhæðin í jöfnunarsjóði skal ekki fara yfir 7,5 milljónir evra. Umframfjárhæð skal bæta við 1. vinningsflokk í næsta útdrætti, nema fjárhæð í 1. vinningsflokki sé hærri en 25 milljónir evra en þá skal bæta umframfjárhæðinni ásamt umframfjárhæð í 1. vinningsflokki við 2. vinningsflokk í sama útdrætti. Ef fjárhæð í 2. vinningsflokki er einnig hærri en 25 milljónir evra skal umframfjárhæð fara í 1. vinningsflokk í næsta útdrætti þrátt fyrir að 1. vinningsflokkur kunni að vera hærri en 25 milljónir evra.

12. gr. EuroJackpot.

Til vinninga fara a.m.k. 50% af verði hverrar raðar. Í EuroJackpot eru 12 vinningsflokkar:

  1. 36% vinningsfjárhæðar skiptast jafnt milli þeirra raða sem innihalda fimm réttar aðaltölur og tvær réttar stjörnutölur.
  2. 8,60% vinningsfjárhæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda fimm réttar aðaltölur og eina rétta stjörnutölu.
  3. 4,85% vinningsfjárhæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda fimm réttar aðaltölur.
  4. 0,80% vinningsfjárhæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda fjórar réttar aðaltölur og tvær réttar stjörnutölur.
  5. 1,00% vinningsfjárhæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda fjórar réttar aðaltölur og eina rétta stjörnutölu.
  6. 1,10% vinningsfjárhæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda þrjár réttar aðaltölur og tvær réttar stjörnutölur.
  7. 0,80% vinningsfjárhæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda fjórar réttar aðaltölur.
  8. 2,55% vinningsfjárhæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda tvær réttar aðaltölur og tvær réttar stjörnutölur.
  9. 2,85% vinningsfjárhæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda þrjár réttar aðaltölur og eina rétta stjörnutölu.
  10. 5,40% vinningsfjárhæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda þrjár réttar aðaltölur.
  11. 6,75% vinningsfjárhæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda eina rétta aðaltölu og tvær réttar stjörnutölur.
  12. 20,30% vinningsfjárhæðar skiptast jafnt á milli þeirra raða sem innihalda tvær réttar aðaltölur og eina rétta stjörnutölu.

Þau 9% af vinningsupphæðinni, sem þá standa eftir, auk aurasjóðs og ósóttra vinninga úr vinningsflokkum 1 og 2, renna í jöfnunarsjóð sem hefur það hlutverk að tryggja að 1. vinningur sé aldrei undir 10 milljónum evra.

Fari inneign í jöfnunarsjóði yfir 20 milljónir evra skal umframfjárhæðinni bætt við fyrsta vinning í næsta útdrætti.

Vinningsfjárhæð í vinningsflokki má ekki verða hærri en vinningsfjárhæð í hærri vinningsflokki. Ef slíkt gerist eru vinningsflokkar lagðir saman og vinningsfjárhæð deilt jafnt milli vinningshafa.

Komi í ljós við útdrátt í EuroJackpot að:

  1. einhver vinningsflokkur hefur engan vinningshafa, flyst vinningsfjárhæðin í þeim vinningsflokki yfir á sama vinningsflokk í næsta útdrætti.
  2. útborgun vinninga í 1. vinningsflokki fer yfir 120 milljón evra hámarkið mun þeirri fjárhæð, sem er yfir markinu, verða bætt við sama útdrátt fyrir 2. vinningsflokk. Hámark vinningsfjárhæða í 2. vinningsflokki er einnig 120 milljónir evra. Ef útborgun vinninga í 2. vinningsflokki fer yfir 120 milljón evra hámarkið, mun þeirri fjárhæð sem umfram er, verða bætt við vinningsfjárhæð næsta vinningsflokks fyrir neðan þar sem einn eða fleiri vinningshafar eru.

Fyrir hvern útdrátt verður tryggð útborgun úr 1. vinningsflokki að lágmarki 10 milljónir evra. Ef einn eða fleiri vinningar í 1. vinningsflokki og reglulegútborgun þess vinningsflokks (36% af heildarútborgun) er lægri en tryggða útborgunin, mun útborgun þess vinningsflokks vera að fjárhæð 10 milljónir evra. Ef það er enginn vinningshafi verður útborgun 1. vinningsflokks í næsta útdrætti aukin um það sem samsvarar tryggðu útborguninni (lágmark 10 milljónir evra).

13. gr. Vinningslíkur.

Tölfræðilegar vinningslíkur í talnagetraununum eru sem hér segir:

1. Lottó 5/42:
Fimm réttar aðaltölur 1:850.668
Fjórar réttar aðaltölur og bónustala 1:170.134
Fjórar réttar aðaltölur 1:4.598
Þrjár réttar aðaltölur og bónustala 1:2.363
Þrjár réttar aðaltölur 1:128
Tvær réttar aðaltölur og bónustala 1:135
2. Jóker:
Fimm réttar tölur 1:100.000
Fjórar réttar tölur 1:5.556
Þrjár réttar tölur 1:556
Tvær réttar tölur 1:56
Heildarupphæð vinninga er 46% að meðaltali.
3. Vikinglottó:
Sex réttar aðaltölur og Víkingatala 1:61.357.560
Sex réttar aðaltölur 1:12.271.512
Fimm réttar aðaltölur og Víkingatala 1:243.482
Fimm réttar aðaltölur 1:48.696
Fjórar réttar aðaltölur 1:950
Þrjár réttar aðaltölur 1:53
4. EuroJackpot
Fimm réttar aðaltölur og tvær stjörnutölur 1:139.838.160
Fimm réttar aðaltölur og ein stjörnutala 1:6.991.908
Fimm réttar aðaltölur 1:3.107.515
Fjórar réttar aðaltölur og tvær stjörnutölur 1:621.503
Fjórar réttar aðaltölur og ein stjörnutala 1:31.075
Þrjár réttar aðaltölur og tvær stjörnutölur 1:14.125
Fjórar réttar aðaltölur 1:13.811
Tvær réttar aðaltölur og tvær stjörnutölur 1:985
Þrjár réttar aðaltölur og ein stjörnutala 1:706
Þrjár réttar aðaltölur 1:314
Ein rétt aðaltala og tvær stjörnutölur 1:188
Tvær réttar aðaltölur og ein stjörnutala 1:49

14. gr. Greiðsla vinninga.

Þátttökukvittunum ber að framvísa til söluaðila. Þar til nafnritun á sér stað aftan á þátttökukvittun er litið á handhafa hennar sem eiganda. Þegar nafnritun hefur átt sér stað skal litið á þann er ritað hefur nafn sitt sem réttan eiganda og rétthafa til vinnings. Hafi fleiri en einn skráð nafn sitt sem eigandi á bakhlið þátttökukvittunar þurfa þeir að kvitta fyrir vinningi eða gefa umboð til móttöku hans.

Vinningar sem eru lægri en kr. 25.000 skulu greiddir út hjá söluaðila frá fyrsta virkum degi eftir útdrátt.

Aðalskrifstofa Íslenskrar getspár sér um að greiða út vinninga sem nema kr. 25.000 eða meira innan tveggja vikna frá því að þátttökukvittun er framvísað til söluaðila eða aðalskrifstofu. Heimilt er að draga greiðslu vinninga, sem nema kr. 50.000 eða meira, til þess tíma að kærufrestur samkvæmt 1. mgr. 15. gr. er liðinn eða kærur hafa verið úrskurðaðar, hafi kæra borist. Þegar um vinning að fjárhæð kr. 25.000 eða hærri er að ræða skal vinningshafi framvísa þátttökukvittun sinni ásamt útfylltu útborgunareyðublaði, sem söluaðili lætur honum í té, til einhvers söluaðila eða aðalskrifstofu. Skal hann fá í hendur kvittað eintak útborgunareyðublaðsins til staðfestingar á afhendingu greiðslu vinningsins um leið og gengið hefur verið úr skugga um að leikreglum hafi verið fylgt. Vextir reiknast ekki á vinninga.

Vinnings skal vitjað innan eins árs frá útdráttardegi ella fellur niður réttur vinningshafa til hans.

V. KAFLI Kærur og eftirlit.

15. gr. Kærur.

Rísi ágreiningur varðandi framkvæmd þessara talnagetrauna skal viðkomandi þátttakandi senda skriflega kæru sem skal hafa borist aðalskrifstofu Íslenskrar getspár fyrir kl. 16.00 á tuttugasta og fyrsta degi frá og með útdráttardegi að telja. Úrskurðaraðili skipaður af dómsmálaráðuneytinu samkvæmt 2. mgr. 16. gr. úrskurðar um kæruna innan 15 daga frá því að kærufrestur rann út.

16. gr. Eftirlit.

Dómsmálaráðuneytið skipar eftirlitsmenn til þriggja ára í senn til að annast eftirlit með allri framkvæmd talnagetrauna Íslenskrar getspár.

Til að úrskurða kærur samkvæmt 15. gr. skipar dómsmálaráðuneytið til þriggja ára í senn mann sem fullnægir skilyrðum til að vera dómari og einnig varamann sem fullnægir sömu skilyrðum.

Eftirlit með tölvukerfi Íslenskrar getspár skal vera í höndum endurskoðunarskrifstofu sem ráðuneytið samþykkir.

Kostnaður við almennt eftirlit með getraunastarfseminni, eftirlit með útdrætti vinninga og meðferð kæra greiðist af Íslenskri getspá samkvæmt úrskurði dómsmálaráðuneytisins.

VI. KAFLI Gildistaka.

17. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í lögum um talnagetraunir nr. 26 2. maí 1986, öðlast gildi 26. janúar 2013. Þó skal hækkun er varðar verð fyrir hvern leik (röð) í Lottó 5/42 öðlast gildi 6. janúar 2013 og hækkun skv. 2. ml. b-liðar 1. mgr. 11. gr. öðlast gildi 24. janúar 2013. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um talnagetraunir nr. 892/1999 ásamt síðari breytingum.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.