Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 5. des. 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 30. ágúst 2024
Sýnir breytingar gerðar 17. júní 2022 – 30. ágúst 2024 af rg.nr. 721/2022, 1032/2022, 1137/2022, 1472/2022, 262/2023, 1124/2023, 1713/2023, 236/2024, 671/2024 og 972/2024

454/2022

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2235 frá 16. desember 2020 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 599/2004, framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 636/2014 og (ESB) 2019/628, tilskipun 98/68/EB og ákvörðunum 2000/572/EB, 2003/779/EB og 2007/240/EB.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar, öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2235 frá 16. desember 2020 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 599/2004, framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 636/2014 og (ESB) 2019/628, tilskipun 98/68/EB og ákvörðunum 2000/572/EB, 2003/779/EB og 2007/240/EB. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2021, frá 19. mars 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10, frá 17. febrúar 2022, bls. 166.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/617 frá 14. apríl 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) 2020/2235 og (ESB) 2020/2236 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum og dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu tiltekinna lagardýra og dýraafurða inn í Sambandið. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 230/2021, frá 24. september 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71, frá 11. nóvember 2021, bls. 57.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/619 frá 15. apríl 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) 2020/2235, (ESB) 2020/2236 og (ESB) 2021/403 að því er varðar umbreytingarákvæði vegna notkunar á dýraheilbrigðisvottorðum, dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum og opinberum vottorðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 230/2021, frá 24. september 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71, frá 11. nóvember 2021, bls. 71.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/36 frá 11. janúar 2022 um breytingu á III. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að vottorðum vegna komu sendinga af tilteknum lifandi lagardýrum og afurðum úr dýraríkinu inn í Sambandið.
  5.  Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1469 frá 10. september 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar að bæta við nýrri fyrirmynd að vottorði fyrir afurðir úr dýraríkinu sem eru upprunnar í Sambandinu, eru fluttar til þriðja lands eða yfirráðasvæðis og fluttar aftur til Sambandsins eftir affermingu, geymslu og endurfermingu í því þriðja landi eða yfirráðasvæði, um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar skrána yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn í Sambandið afurðir úr dýraríkinu sem eru upprunnar í Sambandinu og fara þangað aftur frá þriðja landi eða yfirráðasvæði og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/405 að því er varðar skrá yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins og tilteknar vörur sem eru upprunnar í Sambandinu og fara þangað aftur frá þriðja landi eða svæði þess.
  6.  Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1219 frá 14. júlí 2022 um breytingu á III. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að vottorðum vegna komu sendinga af tilteknum samsettum afurðum til Sambandsins og umflutnings þeirra um Sambandið.
  7.  Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/7 frá 5. janúar 2022 um breytingu á V. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar dýraheilbrigðiskröfur vegna komu mjólkurafurða í samsettum afurðum, sem halda stöðugleika við geymslu, inn í Sambandið.
  8.  Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/854 frá 31. maí 2022 um breytingu á III. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu sendinga af tilteknum afurðum úr dýraríkinu inn í Sambandið.
  9.  Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1329 frá 10. ágúst 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) 2020/2235, (ESB) 2020/2236, (ESB) 2021/403 og (ESB) 2021/404 að því er varðar að framlengja umbreytingartímabil vegna notkunar á dýraheilbrigðisvottorðum, dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum og opinberum vottorðum sem krafist er vegna komu tiltekinna sendinga inn í Sambandið.
  10.  Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2504 frá 19. desember 2022 um breytingu á III. og V. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum og opinberum vottorðum vegna komu sendinga af tilteknum lagarafurðum og mikið unnum afurðum úr dýraríkinu inn í Sambandið og fyrirmynd að eigin staðfestingu vegna innflutnings á tilteknum samsettum afurðum inn í Sambandið.
  11.  Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1471 frá 18. ágúst 2021 um breytingu og leiðréttingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) 2020/2235 og (ESB) 2020/2236 að því er varðar tilvísanir til landsráðstafana sem gerðar eru til að takmarka áhrif tiltekinna sjúkdóma í lagardýrum ásamt skrám yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr og vörur til Sambandsins.
  12.  Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2744 frá 20. nóvember 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum, fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum og eigin staðfestingu vegna komu inn í Sambandið eða umflutnings gegnum Sambandið á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð.
  13.  Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/399 frá 29. janúar 2024 um breytingu á III. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 og II. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/403 að því er varðar fyrirmyndir að vottorðum vegna komu sendinga af tilteknum afurðum úr dýraríkinu og tilteknum flokkum dýra inn í Sambandið.
  14.  Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1333 frá 17. maí 2024 um breytingu og leiðréttingu á III. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að vottorðum vegna komu lifandi fisks, lifandi krabbadýra og afurða úr þessum dýrum og tiltekinna lagarafurða, sem eru ætluð til manneldis, inn í Sambandið.
  15.  Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1874 frá 8. júlí 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð.
  16.  Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2020 frá 26. júlí 2024 um breytingu og leiðréttingu á III. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að vottorðum vegna komu sendinga af tilteknum flokkum dýra og tilteknum afurðum úr dýraríkinu, sem eru ætlaðar til manneldis, til Sambandsins og um leiðréttingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2024/399.

Reglugerðin skal gilda með þeim aðlögunum sem fram koma í ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2021, frá 19. mars 2021 og nr. 230/2021, frá 24. september 2021.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/36 sem nefnd er í 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi fjallar um heilbrigði dýra og gildir um öll stig framleiðslu, vinnslu, dreifingu og innflutning á afurðum úr dýraríkinu og afurðum úr þeim sem ætlaðar eru til neyslu, merkingar búfjár, rekjanleika afurða og tilkynningaskylda sjúkdóma með þeim takmörkunum sem leiðir af I. kafla I. viðauka EES-samningsins, og lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

4. gr.

Ákvæði reglugerðar (ESB) 2020/2235, að því er EES-samninginn varðar, eru aðlöguð sem hér segir:

Í III. viðauka er orðunum "Íslands, Noregs" bætt við á eftir orðinu "Finnlands" í 4. mgr. II. hluta athugasemda í II. hluta 1. kafla, 3. mgr. II. hluta athugasemda í II. hluta 3. kafla og 3. mgr. II. hluta athugasemda í II. hluta 19. kafla og á eftir orðinu "Svíþjóðar" í 2. mgr. II. hluta athugasemda í II. hluta 13. kafla.

5. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 54/1990, um innflutning dýra, lög nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lög nr. 93/1995, um matvæli, lög nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lög nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lög nr. 71/2008, um fiskeldi, öll með síðari breytingum.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

 Matvælaráðuneytinu, 12. apríl 2022. 

 Svandís Svavarsdóttir. 

 Emilía Madeleine Heenen. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.