Fara beint í efnið

Prentað þann 1. sept. 2024

Breytingareglugerð

236/2024

Reglugerð um (8.) breytingu á reglugerð nr. 454/2022 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2235 frá 16. desember 2020 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og o

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 13. tl., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/399 frá 29. janúar 2024 um breytingu á III. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 og II. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/403 að því er varðar fyrirmyndir að vottorðum vegna komu sendinga af tilteknum afurðum úr dýraríkinu og tilteknum flokkum dýra inn í Sambandið.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð (ESB) 2024/399 sem nefnd er í 1. gr. er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 12/2024.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 21. febrúar 2024.

Katrín Jakobsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.