Fara beint í efnið

Prentað þann 23. apríl 2024

Breytingareglugerð

1472/2022

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 454/2022 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2235 frá 16. desember 2020 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 599/2004, framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 636/2014 og (ESB) 2019/628, tilskipun 98/68/EB og ákvörðunum 2000/572/EB, 2003/572/EB og 2007/240/EB.

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýr töluliður, 9. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1329 frá 10. ágúst 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) 2020/2235, (ESB) 2020/2236, (ESB) 2021/403 og (ESB) 2021/404 að því er varðar að framlengja umbreytingartímabil vegna notkunar á dýraheilbrigðisvottorðum, dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum og opinberum vottorðum sem krafist er vegna komu tiltekinna sendinga inn í Sambandið.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar sem nefnd er í 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 21. desember 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Iðunn María Guðjónsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.