Prentað þann 7. apríl 2025
439/2014
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 39/2009 um Kolvetnisrannsóknasjóð, með síðari breytingum.
1. gr.
Í stað orðanna "tveimur fulltrúum leyfishafa" í 2. málsl. 1. gr. reglugerðarinnar, kemur: einum fulltrúa hvers rannsóknar- og vinnsluleyfis fyrir sig.
2. gr.
Í stað orðanna "Orkusjóður undir umsjón Orkustofnunar" í 3. málsl. 1. gr. reglugerðarinnar, kemur: Orkustofnun.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 13/2001, um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis, með síðari breytingum, tekur þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. apríl 2014.
Ragnheiður Elín Árnadóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Ingvi Már Pálsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.