Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Fyrri útgáfa

Prentað þann 5. mars 2026

Reglugerð með breytingum síðast breytt 14. júní 2025
Sýnir breytingar gerðar 14. júní 2025 af rg.nr. 637/2025

422/2023

Reglugerð um eiginleika þráðlausra aðgangspunkta sem þekja lítið svæði.

1. gr. Gildissvið og markmið.

Reglugerð þessi gildir um þráðlausa aðgangspunkta sem þekja lítið svæði í skilningi laga um fjarskipti, nr. 70/2022.

Markmið reglugerðarinnar er að tilgreina kröfur um eðlisfræðilega og tæknilega eiginleika, svo sem hámarksstærð, þyngd og sendiafl sem þráðlausir aðgangspunktar sem þekja lítið svæði skulu uppfylla.

2. gr. Innleiðing ESB-gerðar.

MeðÁ reglugerðgrundvelli þessariákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar, sem vísað er til hér að neðan, skulu eftirtaldar ESB-gerðir öðlast gildi hér á landi eftirtalin reglugerð sem vísað er til í XI. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XI. viðauka samningsinsvið EES-samninginn, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1070 frá 20. júlí 2020 um tilgreiningu einkenna þráðlausra aðgangsstaða sem þekja lítið svæði skv. 2. mgr. 57. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1972, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74, dagsett 18. nóvember 2021, á bls. 60, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 277/2021 frá 24. september 2021.

  2.  Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2000 frá 24. júlí 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/1070 til að rökstyðja skýrslugjöf um beitingu hennar og til að gera kleift að nota virk loftnetskerfi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 294/2024, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 10, 20. febrúar 2025, bls. 961-963.

3. gr. Eftirlit og viðurlög.

Fjarskiptastofa hefur eftirlit með kröfum laga um fjarskipti, nr. 70/2022, til eiginleika þráðlausra aðgangspunkta sem þekja lítið svæði, sem nánar eru útfærðar í reglugerð þessari.

Um framkvæmd eftirlits, aðgang Fjarskiptastofu að upplýsingum og úrlausn deilumála fer samkvæmt lögum um Fjarskiptastofu, nr. 75/2021.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum XV. kafla laga um fjarskipti, nr. 70/2022.

4. gr. Heimild og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. mgr. 41. gr., sbr. 107. gr. laga um fjarskipti, nr. 70/2022, og öðlast þegar gildi.

 Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. apríl 2023. 

 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir. 

 Ásdís Halla Bragadóttir. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.