Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 29. maí 2021

413/2014

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 896/2012 um hvaða flugrekendur heyra undir umsjón Íslands í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

1. gr.

Við 1. mgr. 4. gr. bætast tveir nýir stafliðir, d- og e-liður, sem orðast svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 815/2013 frá 27. ágúst 2013 um breytingu á reglugerð nr. 748/2009 um skrána yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem getið er í viðauka I við tilskipun 2003/87/EB 1. janúar 2006 eða síðar, þar sem ábyrgðarríki hvers umráðanda loftfars er tilgreint að teknu tillit til aðildar Króatíu að Evrópusambandinu sem vísað er til í tölulið 21as, III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 56/2014 frá 8. apríl 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 10. apríl 2014 - 2014/EES/23/50 bls. 500-687.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 100/2014 frá 5. febrúar 2014 um breytingu á reglugerð nr. 748/2009 um skrána yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem getið er í viðauka I við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB frá 1. janúar 2006 eða eftir þann dag þar sem ábyrgðarríki hvers umráðanda loftfars er tilgreint, sem vísað er til í tölulið 21as, III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 56/2014 frá 8. apríl 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 10. apríl 2014 - 2014/EES/23/53 bls. 770-958.

2. gr. Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerðum framkvæmdastjórnar (ESB):

  1. Reglugerð nr. 815/2013 um breytingu á reglugerð nr. 748/2009 um skrána yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem getið er í viðauka I við tilskipun 2003/87/EB sem vísað er til í tölulið 21as, III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 56/2014 frá 8. apríl 2014.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 100/2014 frá 5. febrúar 2014 um breytingu á reglugerð nr. 748/2009 um skrána yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem getið er í viðauka I við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB frá 1. janúar 2006 eða eftir þann dag þar sem ábyrgðarríki hvers umráðanda loftfars er tilgreint, sem vísað er til í tölulið 21as, III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 56/2014 frá 8. apríl 2014.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 4. mgr. 16. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 29. apríl 2014.

F. h. r.

Sigríður AuðurArnardóttir.

Hugi Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.