Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 16. apríl 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 30. apríl 2013 – 25. jan. 2018 Sjá núgildandi

387/2013

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 327/2011 um kröfur varðandi visthönnun viftna sem ganga fyrir hreyflum með rafinnafl á bilinu 125 W og 500 kW.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir lið 26e í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 11/2013, frá 1. febrúar 2013, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 327 frá 30. mars 2011 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun viftna sem ganga fyrir hreyflum með rafinnafl á bilinu 125 W og 500 kW.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 327/2011 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20/2011, 28. mars 2013, bls. 439.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem notar orku, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 18. apríl 2013.

F. h. r.

Kristján Skarphéðinsson.

Ólafur Egill Jónsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.