Prentað þann 21. jan. 2026
1255/2025
Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1834 um framkvæmd tilskipunar evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/eb að því er varðar kröfur varðandi visthönnun viftna sem ganga fyrir hreyflum með rafinnafl á bilinu 125 w til 500 kw og um niðurfellingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 327/2011.
1. gr.
Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 6z í kafla IV í II. viðauka og í lið 26za í kafla IV í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 194/2025 frá 19. september 2025, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1834 frá 3. júlí 2024, um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun viftna sem ganga fyrir hreyflum með rafinnafl á bilinu 125 W til 500 kW og um niðurfellingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 327/2011.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1834 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 75/2025, 27. nóvember 2025, bls. 113-141.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 16. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur brott reglugerð nr. 387/2013 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 327/2011 um kröfur varðandi visthönnun viftna sem ganga fyrir hreyflum með rafinnafl á bilinu 125 W og 500 kW.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 27. nóvember 2025.
F. h. r.
Stefán Guðmundsson.
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.
B deild - Útgáfudagur: 28. nóvember 2025
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.