Fara beint í efnið

Prentað þann 8. apríl 2026

Breytingareglugerð

295/2026

Reglugerð um breytingu á reglugerð um réttindi og skyldur umboðsmanna við framkvæmd kosninga, nr. 499/2024.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. málsl. 6. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir orðinu "skal", kemur: að jafnaði.
  2. Í stað orðsins "tímanlega", kemur: eigi síðar en tveimur sólarhringum.
  3. Í stað orðsins "umboðsmenn", kemur: aðstoðarmenn.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. málsl. 1. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir orðinu "umboðsmönnum", kemur: framboða í umdæmi kjörstjóra.
  2. Orðin "óháð kjördæmi eða sveitarfélagi" falla brott.

3. gr.

3. málsl. 1. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

4. gr.

2. málsl. 2. mgr. 21. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 59. gr. a. kosningalaga nr. 112/2021 og tekur þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 23. mars 2026.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.

Páll Winkel.

B deild - Útgáfudagur: 26. mars 2026

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.