Prentað þann 23. des. 2024
294/2022
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 960/2019 um takmarkanir við veiðum með fiskibotnvörpu.
1. gr.
Við reglugerðina bætist við ný gr. sem verður 10. gr. a. svohljóðandi:
Frá og með 1. júlí til 31. desember ár hvert eru allar veiðar með fiskibotnvörpu bannaðar á svæði út af Glettinganesi sem markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:
- 65°45,18´N - 13°47,06´V
- 65°45,18´N - 13°28,27´V
- 65°40,32´N - 13°17,92´V
- 65°34,84´N - 13°08,97´V
- 65°30,66´N - 13°07,82´V
- 65°30,66´N - 13°22,05´V
- 65°32,75´N - 13°22,62´V
- 65°36,75´N - 13°29,14´V
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 8. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 22. febrúar 2022.
Svandís Svavarsdóttir
matvælaráðherra.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.