Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2026

Breytingareglugerð

293/2026

Reglugerð um breytingu á reglugerð um skráningu, móttöku og meðferð utankjörfundaratkvæða, nr. 480/2024.

1. gr.

Orðin "kjósandi taki atkvæðisbréfið með sér eða hvort kjörstjóri taki að sér að koma því til skila" í 4. tölul. 3. gr. reglugerðarinnar, falla brott.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Yfirkjörstjórn er heimilt að hefja flokkun atkvæðabréfa tímanlega fyrir kjördag þannig að þau verði afhent í rétta kjördeild á kjördag.
  2. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Móttaka og flokkun utankjörfundaratkvæða.

3. gr.

Á eftir 7. gr. reglugerðarinnar koma tvær nýjar greinar, svohljóðandi ásamt fyrirsögn, og breytist númer annarra greina því til samræmis:

  1. (8. gr.)

Bráðabirgðarannsókn utankjörfundaratkvæða.

Að flokkun lokinni skal kjörstjórnarmaður opna atkvæðisbréfin og kanna hvort taka skuli atkvæðið til greina, sbr. 94. gr. kosningalaga. Ef atkvæði er tekið til greina skal merkja til bráðabirgða við nafn kjósandans í kjörskránni og leggja kjörseðilsumslagið óopnað ásamt fylgibréfinu á ný í sendiumslagið og varðveita meðan atkvæðagreiðslan fer fram. Ef atkvæðið er ekki tekið til greina skal ganga frá kjörseðilsumslaginu og fylgibréfinu og varðveita á sama hátt, en rita skal ástæðu þess að atkvæðið verður ekki tekið til greina á sendiumslagið.

Atkvæðisbréfa, sem kjörstjórn kunna að hafa borist eða berast meðan á atkvæðagreiðslu stendur, skal getið í gerðabók. Skal fara með þau atkvæði sem segir í 1. mgr.

Ef kjósandi er ekki á kjörskrá í kjördeildinni (sveitarfélaginu) skal kjörstjórnin kanna hvar kjósandi er á kjörskrá og ef unnt er koma atkvæðisbréfinu í rétta kjördeild en ella skal bréfið varðveitt þar til atkvæðagreiðslu lýkur.

  1. (9. gr.)

Rannsókn utankjörfundaratkvæða að kjörfundi loknum.

Að atkvæðagreiðslu lokinni kannar kjörstjórnin á ný, í viðurvist umboðsmanna framboða, þau utankjörfundaratkvæði sem kjörstjórninni hafa borist og ekki hafa verið afhent kjósanda, sbr. 4. mgr. 77. gr. kosningalaga.

Ef atkvæðisbréfið er tekið til greina, sbr. 94. gr. kosningalaga, skal kjörstjórnin setja merki við nafn kjósandans á kjörskránni og setja kjörseðilsumslagið óopnað í atkvæðakassann. Bóka skal í gerðabók hversu mörg utankjörfundaratkvæði eru tekin til greina.

Ef atkvæðisbréf er ekki tekið til greina, sbr. 94. gr. kosningalaga, skal það áritað eins og segir í 8. gr. Bóka skal í gerðabók hversu mörg utankjörfundaratkvæði eru ekki tekin til greina og af hvaða ástæðu.

Verði ágreiningur innan kjörstjórnar eða milli kjörstjórnar og umboðsmanns framboðs um hvort utankjörfundaratkvæði sé gilt eða ógilt skal bóka nákvæmlega í gerðabókina í hverju ágreiningurinn er fólginn og leggja kjörseðilsumslagið óopnað ásamt fylgibréfi aftur í sendiumslagið og senda það til úrskurðar yfirkjörstjórnar.

Þau kjörseðilsumslög, sem enginn ágreiningur er um að gild séu, lætur kjörstjórn óopnuð í atkvæðakassann, sbr. 2. mgr.

Ef kjósandi, sem sent hefur frá sér utankjörfundaratkvæði, er ekki á kjörskrá í kjördeildinni skal kjörstjórnin geta þess sérstaklega í gerðabókinni og senda slík atkvæðisbréf aðskilin til yfirkjörstjórnar.

Ef fleiri en eitt atkvæði greidd utan kjörfundar berast frá sama kjósanda sem geta komið til greina, skal aðeins hið síðastgreidda atkvæði koma til greina.

Þau atkvæðisbréf sem ekki eru tekin til greina og þau sem ágreiningur er um skulu sett í sérstök atkvæðaumslög, sem landskjörstjórn leggur kjörstjórnum til, og umslögin merkt til samræmis við innihald þeirra.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. mgr. 74. gr., 3. og 7. mgr. 77. gr. og 3. mgr. 81. gr. kosningalaga nr. 112/2021 og tekur þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 23. mars 2026.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.

Páll Winkel.

B deild - Útgáfudagur: 26. mars 2026

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.