Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2026

Breytingareglugerð

292/2026

Reglugerð um breytingu á reglugerð um kjörgögn og önnur aðföng við kosningar o.fl., nr. 500/2024.

1. gr.

9. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Landskjörstjórn og kjörstjórar innanlands og erlendis skulu ávallt varðveita utankjörfundargögn, þar með talið atkvæðakassa sem ekki eru í notkun og innihalda greidd atkvæði, með tryggum og öruggum hætti.

Að loknum kosningum skulu kjörstjórar sjá til þess að ónotuð utankjörfundargögn séu varðveitt með tryggum og öruggum hætti.

2. gr.

Í stað skammstöfunarinnar "u.þ.b." í 2. málsl. 1. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar, kemur: að lágmarki um.

3. gr.

Á undan orðinu "dagsetningu" í 5. tölul. 2. mgr. 12. gr. reglugerðarinnar, kemur: tíma- og.

4. gr.

Í stað orðanna "um u.þ.b." í 2. málsl. 2. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar, kemur: að lágmarki um.

5. gr.

Við 5. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þar fyrir neðan skal vera þverstrik sem nær yfir allan kjörseðillinn.

6. gr.

Í stað orðanna "um u.þ.b." í 2. málsl. 2. mgr. 23. gr. reglugerðarinnar, kemur: að lágmarki um.

7. gr.

Við 5. mgr. 24. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þar fyrir neðan skal vera þverstrik sem nær yfir allan kjörseðillinn.

8. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 25. gr. reglugerðarinnar:

  1. Við 1. mgr. bætist: en þar fyrir neðan skal vera þverstrik sem nær yfir allan kjörseðillinn.
  2. Við 1. málsl. 2. mgr. bætist: og skal efri hlutinn merktur fyrir aðalmenn en sá neðri fyrir varamenn.

9. gr.

Á eftir 4. mgr. 28. gr. reglugerðarinnar kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Við sveitarstjórnarkosningar þar sem fram fer óbundin kosning skal yfirkjörstjórn hafa aðgengilegar upplýsingar um þá sem skorast hafa undan endurkjöri, skv. 5. mgr. 49. gr. kosningalaga.

10. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "krossvið eða efni sambærilegu að styrkleika og öryggi" í 1. málsl., kemur: efni; og á eftir orðinu "tryggilega" í sama málslið, kemur: og innsigla.
  2. Orðin "úr sama efni" í 2. málsl. falla brott.
  3. 4., 5. og 6. málsl. falla brott.

11. gr.

Orðin "samkvæmt 1. mgr. 76. gr. kosningalaga" í 2. mgr. 34. gr. reglugerðarinnar falla brott.

12. gr.

Orðin "og eyðing" í fyrirsögn 38. gr. reglugerðarinnar falla brott.

13. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. mgr. 62. gr., 65. gr., 3. mgr. 81. gr. og 2. mgr. 97. gr. kosningalaga nr. 112/2021 og tekur þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 23. mars 2026.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.

Páll Winkel.

B deild - Útgáfudagur: 26. mars 2026

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.