Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Fyrri útgáfa

Prentað þann 20. apríl 2025

Reglugerð með breytingum síðast breytt 31. jan. 2013
Sýnir breytingar gerðar 31. jan. 2013 af rg.nr. 79/2013

130/1994

Reglugerð um gildistöku tiltekinna tilskipana Evrópubandalagsins um mælitæki

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í töluliðum 3., 5., 7., 13., 14., 17., 18., 20., 2213. og 26. tölul. í IX. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið nr. 2/1993, með áorðnum breytingum.

2. gr.

Eftirtaldar EB-gerðir öðlast því gildi hér á landi, sbr. 1. gr.:

a. tilskipun ráðsins 71/318/EBE frá 26. júlí 1971 um samræmingu laga aðildaríkjanna varðandi gasrúmmálsmæla;

 b. tilskipun ráðsins 71/347/EBE frá 12. október 1971 um samræmingu laga aðildarríkjanna um að ákvarða hektólítraþyngd kornvöru;

 c. tilskipun ráðsins 71/349/EBE frá 12. október 1971 um samræmingu laga aðildarríkjanna um kvörðun á tönkum skipa;

 d. tilskipun ráðsins 75/107/EBE frá 19. desember 1974 um samræmingu laga aðildarríkjanna varðandi flöskur (ílát) sem notaðar eru sem mælikeröld; 

 e. tilskipun ráðsins 75/410/EBE frá 24. júlí 1975 um samræmingu laga aðildarríkjanna varðandi samfelldan samlagningarvogarbúnað;

 g. tilskipun ráðsins 76/765/EBE frá 27. júlí 1976 um samræmingu laga aðildarríkjanna varðandi alkóhólmæla og alkóhól- flotmæla;

 h. tilskipun ráðsins 76/766/EBE frá 27. júlí 1976 um samræmingu laga aðildarríkjanna varðandi alkóhól-töflur;

 i. tilskipun ráðsins 77/95/EBE frá 21. desember 1976 um samræmingu laga aðildarríkjanna varðandi gjaldmæla leigubíla;

 j. tilskipun ráðsins 78/1031/EBE frá 5. desember 1978 um samræmingu laga aðildarríkjanna varðandi sjálfvirkar gátvigtunar- og þyngdarflokkunarvélar;

 k. tilskipun ráðsins 86/217/EBE frá 26. maí 1986 um samræmingu laga aðildarríkjanna varðandi mælitæki til mælinga á loftþrýstingi í hjólbörðum vélknúinna ökutækja.

3. gr.

EB-gerðir, sem vísað er til í 1. og 2. gr., eru birtar í sérriti, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 31/1993.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 100/1992 um vog, mál og faggildingu, öðlast þegar gildi.

 Viðskiptaráðuneytið, 28. febrúar 1994. 

 F. h. r.

 Þorkell Helgason. 

 Sveinn Þorgrímsson. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.