Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 4. maí 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 24. jan. 2014 – 23. mars 2016 Sjá núgildandi

50/2014

Reglugerð um .eu höfuðlénið.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að taka í notkun landskóðann .eu og gera íslenskum aðilum mögulegt að fá úthlutað lénum með endingunni .eu.

2. gr. Gildissvið.

Gildissvið reglugerðarinnar er nánar skilgreint í 1. gr. reglugerðar (EB) nr. 733/2002 um að taka í notkun .eu höfuðlénið.

3. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins (EB), samkvæmt ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XI. viðauka EES-samningsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XI. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 733/2002 frá 22. apríl 2002 um að taka í notkun .eu höfuðlénið, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, dagsett 16. maí 2013, á bls. 650, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2013 frá 3. maí 2013, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 61, dagsett 31. október 2013, á bls. 56.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 874/2004 frá frá 28. apríl 2004 um reglur um opinbera stefnu varðandi að taka í notkun .eu höfuðlénið og hlutverk þess ásamt meginreglum um skráningu, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, dagsett 16. maí 2013, á bls. 371, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2013 frá 3. maí 2013, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 61, dagsett 31. október 2013, á bls. 56.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1654/2005 frá 10. október 2005 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 874/2004 um reglur um opinbera stefnu varðandi að taka í notkun .eu höfuðlénið og hlutverk þess ásamt meginreglum um skráningu, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, dagsett 16. maí 2013, á bls. 382, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2013 frá 3. maí 2013, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 61, dagsett 31. október 2013, á bls. 56.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1255/2007 frá 25. október 2007 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 874/2004 um reglur um opinbera stefnu varðandi að taka í notkun .eu höfuðlénið og hlutverk þess ásamt meginreglum um skráningu, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, dagsett 16. maí 2013, á bls. 397, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2013 frá 3. maí 2013, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 61, dagsett 31. október 2013, á bls. 56.
  5. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 560/2009 frá 26. júní 2009 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 874/2004 um reglur um opinbera stefnu varðandi að taka í notkun .eu höfuðlénið og hlutverk þess ásamt meginreglum um skráningu, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, dagsett 16. maí 2013, á bls. 303, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2013 frá 3. maí 2013, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 61, dagsett 31. október 2013, á bls. 56.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 75. gr. fjarskiptalaga nr. 81/2003 með síðari breytingum, sbr. einnig 15. gr. laganna, og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 9. janúar 2014.

Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.