Prentað þann 21. nóv. 2024
50/2014
Reglugerð um .eu höfuðlénið.
1. gr. Markmið.
Markmið reglugerðar þessarar er að taka í notkun landskóðann .eu og gera íslenskum aðilum mögulegt að fá úthlutað lénum með endingunni .eu.
2. gr. Gildissvið.
Gildissvið reglugerðarinnar er nánar skilgreint í 1. gr. reglugerðar (EB) nr. 733/2002 um að taka í notkun .eu höfuðlénið.
3. gr. Innleiðing.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins (EB), samkvæmt ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XI. viðauka EES-samningsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XI. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 733/2002 frá 22. apríl 2002 um að taka í notkun .eu höfuðlénið, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, dagsett 16. maí 2013, á bls. 650, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2013 frá 3. maí 2013, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 61, dagsett 31. október 2013, á bls. 56.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 874/2004 frá frá 28. apríl 2004 um reglur um opinbera stefnu varðandi að taka í notkun .eu höfuðlénið og hlutverk þess ásamt meginreglum um skráningu, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, dagsett 16. maí 2013, á bls. 371, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2013 frá 3. maí 2013, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 61, dagsett 31. október 2013, á bls. 56.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1654/2005 frá 10. október 2005 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 874/2004 um reglur um opinbera stefnu varðandi að taka í notkun .eu höfuðlénið og hlutverk þess ásamt meginreglum um skráningu, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, dagsett 16. maí 2013, á bls. 382, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2013 frá 3. maí 2013, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 61, dagsett 31. október 2013, á bls. 56.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1255/2007 frá 25. október 2007 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 874/2004 um reglur um opinbera stefnu varðandi að taka í notkun .eu höfuðlénið og hlutverk þess ásamt meginreglum um skráningu, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, dagsett 16. maí 2013, á bls. 397, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2013 frá 3. maí 2013, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 61, dagsett 31. október 2013, á bls. 56.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 560/2009 frá 26. júní 2009 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 874/2004 um reglur um opinbera stefnu varðandi að taka í notkun .eu höfuðlénið og hlutverk þess ásamt meginreglum um skráningu, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, dagsett 16. maí 2013, á bls. 303, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2013 frá 3. maí 2013, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 61, dagsett 31. október 2013, á bls. 56.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/516 frá 26. mars 2015 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 874/2004 um reglur um opinbera stefnu varðandi að taka í notkun .eu höfuðlénið og hlutverk þess ásamt meginreglum um skráningu, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74, dags. 10. desember 2015, á bls. 885, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 271/2015, frá 30. október 2015.
4. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 75. gr. fjarskiptalaga nr. 81/2003 með síðari breytingum, sbr. einnig 15. gr. laganna, og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 9. janúar 2014.
Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.