Slævandi vímuefni
Slævandi efni með róandi og kvíðastillandi áhrif. Óæskileg/hættuleg áhrif geta verið að einstaklingurinn verði syfjaður og máttfarinn og lendi í öndunarerfiðleikum. Viðkomandi getur misst meðvitund, fengið lágan blóðþrýsting og í versta falli öndunarstopp.
Um bensódíazepín
Bensódíazepín eru lyfseðilsskyld lyf, en finnast einnig á ólöglegum markaði. Öll bensódíazepín hafa slævandi áhrif og verka róandi og vöðvaslakandi.
Lyfin eru notuð í læknisfræðilegum tilgangi til að meðhöndla til dæmis kvíðaraskanir, krampa, svefnvandamál og flogaveiki. Til eru margar mismunandi gerðir bensódíazepína, bæði ólöglega og löglega framleidd. Á undanförnum árum hafa komið á markað fleiri ný bensódíazepínlík vímuefni, svokallaðar afleiður, sem eru seldar eru á svörtum markaði eða ólöglega á netinu. Einnig hefur töluvert verið greint af fölsuðum lyfjum sem eru seld sem löglega framleidd bensódíazepín.
Algengustu bensódíazepín á Íslandi
Alprazolam sem einnig eru seld eru undir sérheitinu Tafil®. Á svörtum markaði gengur lyfið kaupum og sölum undir sérlyfjaheitinu Xanax® en það hefur ekki verið skráð hér á landi.
Oxazepam sem selt er undir sérlyfjaheitinu Sobril® hér á landil.
Díazepam sem selt er undir sérlyfjaheitinu Stesolid® hér á landi.
Klórdíazepoxíð sem selt er undir sérlyfjaheitinu Risolid® hér á landi.
Klónazepam sem selt er undir sérlyfjaheitinu Rivotril® og notað við flogaveiki.
Um svefnlyf (bensódíazepínlík efni)
Imovane (með virka efninu zópíklón) og Stilnoct (með virka efninu zólpídem) eru ekki bensódíazepín, heldur bensódíazepínlík lyf. Bæði eru notuð við erfiðleikum með að sofna en aðeins er mælt með notkun þeirra í stuttan tíma vegna hættu á að mynda þol og fíkn.
Inntökuleiðir
Algengasta inntökuleiðin er í töfluformi. Þekkt er að einstaklingar sem misnota bensódíazepín leysi töflurnar upp og sprauti þeim í æð. Einnig er þekkt að töflur séu muldar og dregnar upp í nef.
Þegar efnunum er sprautað í æð geta óuppleyst hjálparefni, svo sem bindiefni, fylliefni og rennslisefni, borist sem agnir í lungun. Þar geta þau stíflað smáar æðar og valdið lungnasegareki (blóðtappa í lungum) eða leitt til staðbundinnar, langvinnrar bólgu. Einnig er hætta á sýkingum.
Verkanir og aukaverkanir bensódíazepína
Áhrif bensódíazepína koma tiltölulega fljótt fram eftir inntöku. Ekki er mælt með langtímanotkun þar sem hætta á þoli og fíkn er töluverð og fráhvarfseinkenni geta komið fram jafnvel eftir stutta notkun.
Algeng áhrif eru slökun, syfja og sljóleiki. Minni og viðbragðsflýtir skerðast. Aukin hvatvísi og árásargirni geta komið fram, jafnvel við litla skammta. Samhliða notkun annarra vímuefna eykur líkur á slíkum viðbrögðum. Aukin hætta er á byltum vegna jafnvægisskerðingar. Rannsóknir sýna aukna hættu á að lenda í umferðarslysi, jafnvel eftir einn skammt einu sinni.
Bensódíazepín eru mjög ávanabindandi. Þol myndast fljótt, sem þýðir að taka þarf stærri skammta til að ná sömu áhrifum.
Fráhvarfseinkenni
Geta komið fram jafnvel eftir stutta notkun, en eru yfirleitt alvarlegri eftir langvarandi notkun. Kvíði, ógleði, krampar, hjartsláttarónot, aukinn púls og hækkaður blóðþrýstingur eru meðal fráhvarfseinkenna.Í sjaldgæfum tilvikum geta fráhvarfseinkenni verið lífshættuleg. Hæg niðurskömmtun getur dregið úr fráhvarfseinkennum og er mælt með að hún fari fram í samráði við lækni. Í sumum tilvikum getur verið nauðsynlegt að fá meðferð á stofnun.
Um kannabis
Kannabis er samheiti yfir afurðir úr plöntunum Cannabis sativa og Cannabis indica. Áhrifum kannabis má lýsa sem miðtaugakerfisslævandi og vægt ofskynjunavaldandi. Kannabis er fyrst og fremst slævandi og veldur vægri til verulegri breytingu á meðvitundarástandi.
Úr kannabisplöntunni eru meðal annars framleidd hass, maríjúana, olía og ýmsar aðrar kannabisafurðir.
THC
Helsta virka efnið í kannabis er THC (delta-9-tetrahýdrókannabínól). Vímuáhrif kannabis stafa aðallega af THC.
Hlutfall THC í kannabisafurðum er mjög breytilegt. Það fer til dæmis eftir því hvaða yrki (blendingur) er notað, hvernig plantan er ræktuð og hvaða hlutar hennar eru notaðir við framleiðslu.
Greiningar á haldlögðu efni sýna að meðalstyrkur THC í kannabisafurðum hefur aukist á undanförnum árum. Því sterkara efni, þeim mun meiri ávanabinding og myndun þols og hætta á geðrofi hjá þeim sem neyta efnisins.
Mismunandi kannabisafurðir
Úr kannabisplöntunni er hægt að framleiða fjölmargar afurðir. Sameiginlegt með þeim er einkennandi, sætleg lykt sem verður sérstaklega áberandi við reykingu.
Hass (brúnt) er kvoða plöntunnar sem er pressuð saman með plöntuhlutum. Hass er ýmist etið eða reykt. Það kemur yfirleitt í þykkum, brúnum eða svörtum plötum sem eru brotnar niður í smærri bita eða neysluskammta.
Maríjúana (weed, gras) samanstendur yfirleitt af þurrkuðum blómatoppum, en getur einnig innihaldið mismikið af laufum, stilkum og fræjum. Plöntuefnið er malað eða mulið og oftast reykt.
Kannabisolía er jurtaolía sem unnin er úr hassplöntunni. Olían er fljótandi og er yfirleitt borin á tóbak, hass eða maríjúana og síðan reykt. THC-innihald í kannabisolíu er oft hátt. Olían er því yfirleitt sterkasta form hassafurða og áhættur og aukaverkefnir af neyslu hennar í samræmi við það.
Fjölmargar aðrar kannabisafurðir eru á markaðnum, svo sem lyfið Sativex-munnúði (með THC og CBD), krem, drykkir, veip og margt fleira.
Tilbúnir kannabínóíðar (spice, „legal highs“)
Eru stór flokkur efna sem framleidd eru efnafræðilega og hafa kannabislík áhrif. Þeim er yfirleitt úðað eða þeir bornir á plöntuefni sem líkist kannabis í útliti. Flest þessara efna hafa þó mun sterkari áhrif en náttúrulegar kannabisafurðir eins og hass og maríjúana, sem eykur verulega hættuna á neikvæðum afleiðingum við notkun.
Um smjörsýru og afleiður
Smjörsýra (GHB) er slævandi vímuefni sem finnst náttúrulega í líkamanum í litlu magni. Hlutverk efnisins er ekki að fullu þekkt, en það gegnir líklega hlutverki í stjórnun svefns. Öll smjörsýra sem framleidd er til notkunar sem vímugjafi er framleidd með efnafræðilegum aðferðum (efnasmíð). Hún er aðallega seld í vökvaformi, en einnig sem duft eða í hylkjum. Í vökvaformi er smjörsýra glær vökvi með örlítið söltu bragði.
Afleiður smjörsýru (Gamma butyrolactone og 1,4-bútandíól-1,4-BD) eru efnafræðileg forstig smjörsýru og hafa svipuð áhrif.
Smjörsýra er einnig þekkt sem „byrlunarlyf“ t.d. er þekkt að því sé blandað í drykki.
Hvernig verkar smjörsýra?
Vímuáhrif ráðast af hreinleika efnisins, magni og inntökuaðferð. Við venjulegan skammt koma áhrif fram eftir um 15–30 mínútur og vara yfirleitt í 3–5 klukkustundir.
Smjörsýra er slævandi og áhrifin líkjast á margan hátt áhrifum áfengis. Algeng áhrif eru slökun, skert samhæfing og skert dómgreind.
Aukaverkanir og ávanahætta
Samhliða notkun smjörsýru með öðrum efnum getur haft ófyrirsjáanlegar og alvarlegar afleiðingar.
Ógleði, uppköst, krampar eða vöðvakippir, svimi, skyndileg þreyta og að hluta til eða algjört tap á samhæfingu.
Framleiðsla smjörsýru getur verið óhrein og innihaldið ætandi efni eins og lút. Ef óhreint efni er drukkið beint úr flösku eða án þess að þynna það getur það valdið alvarlegum brunasárum í munni og hálsi.
Einkenni ofskömmtunar smjörsýru
Meðvitundarleysi, hægari hjartsláttur og blóðþrýstingur, ósjálfráð þvaglát, vöðvakrampar, vöðvakippir og í verstu tilfellum öndunarstopp og dauði. Því er sérstaklega mikilvægt að einstaklingar með hjartasjúkdóma, óeðlilegan blóðþrýsting, öndunarerfiðleika eða flogaveiki noti ekki smjörsýru.
Ávanabinding og fíkn
Smjörsýra er ávanabindandi við reglulega notkun og fráhvarfseinkenni koma fram ef notkun er hætt er skyndilega.
Algeng fráhvarfseinkenni
Kvíði, svefnvandamál, ógleði, krampar, skjálfti, sviti og rugl.
Um ópíóíðar
Ópíóíðar er samheiti yfir lyf eða vímuefni sem verka slævandi á ópíóíðaviðtaka í heilanum, eins og heróín, morfín og metadón.
Áhrifum þeirra er lýst sem sterklega róandi og verkjastillandi og geta valdið vímuástandi (e. euphoria) og sinnuleysi.
Ópíóíðar: ópíöt, heróín, morfín, metadón og búprenorfín
Ópíóíðar sem finnast náttúrulega og eru unnir úr ópíumvalmúa kallast ópíöt. Ópíóíðar ná yfir bæði náttúrulega ópíóíða og þá sem eru efnafræðilega framleiddir.
Morfín og kódín eru dæmi um náttúrulega ópíóíða.
Heróín er dæmi um bæði náttúrlegt og efnasmíðað ópíóíð.
Metadón, búprenorfín (Subutex, Suboxone, Temgesic o.fl.), oxýkódón, tramadól og fentanýl eru dæmi um efnasmíðaða ópíóíða
Ávanabinding, fíkn og fráhvarf
Við reglulega notkun ópíóíða myndast þol, sem þýðir að taka þarf stærri skammta til að ná sömu áhrifum. Þolið minnkar fljótt eftir hlé á notkun sem eykur hættu á ofskömmtun ef einstaklingur tekur aftur sama skammt og áður.
Ópíóíðar eru mjög ávanabindandi og valda sterkum fráhvarfseinkennum þegar notkun er hætt. Einkennin líkjast oft slæmri inflúensu og geta krafist sjúkrahúsmeðferðar. Mælt er með hægri niðurtröppun. Einnig er hægt að fá svokallaða viðhaldsmeðferð (buprenorphinum, Buvidal®, Zubsolv®) við fíkn. Lyfin sem notuð eru til viðhaldsmeðferðar eru vægari en sterku verkjalyfin og henta því vel til niðurtröppunar.
Samhliða notkun sterkra verkjalyfja og búprenorfín
Ef morfín er gefið til að lina mikla verki og búprenorfín er gefið stuttu síðar til að auka áhrif, getur það dregið úr verkjastillandi áhrifum morfíns. Einstaklingur getur því fundið fyrir meiri verkjum eða minni vímu en ef hann hefði aðeins tekið morfín.
Naloxón
Naloxón stöðvar áhrif ópíóíða á miðtaugakerfið og er notað gegn ofskömmtun af völdum ópíóíða. Naloxón getur einnig hindrað hægðatregðu sem er algeng aukaverkun ópíóíða.
Þar sem naloxón stöðvar áhrif ópíóíða á miðtaugakerfið upplifa margir notendur sterk fráhvarfseinkenni eftir að hafa fengið naloxón við ofskömmtun.
Örvandi vímuefni
Örvandi efni auka vöku, sjálfstraust og draga úr matarlyst. Óæskileg/hættuleg áhrif geta verið að einstaklingurinn verði æstur og ruglaður, hjartað slái hratt og blóðþrýstingur hækki. Alvarleg eitrun getur valdið hættu á hjartaáfalli, krömpum, lífshættulega háum líkamshita og heilablóðfalli.
Amfetamín er vímuefni með örvandi áhrif, það er að segja að einstaklingurinn upplifir meiri orku, minni svefnþörf og meiri árvekni.
Amfetamín í duftformi er yfirleitt hvítt, en getur einnig verið gulleitt, brúnt, bleikt eða bláleitt.
Amfetamín er oftast tekið um nef „sniffað“, en getur einnig verið tekið inn um munn, drukkið uppleyst í vökva eða sprautað í æð.
Yfirleitt vara áhrifin í 3–6 klukkustundir, en geta varað lengur við stærri skammta.
Metamfetamín er efnafræðilega mjög líkt amfetamíni, en mun sterkara. Metamfetamín er oftast selt í duftformi sem „sterkt“ amfetamín, en getur einnig komið fyrir í föstu formi sem líkist kristöllum. Á Íslandi er amfetamín mun algengara en metamfetamín.
Flestir þekkja ekki muninn á amfetamíni og metamfetamíni. Duftið er venjulega lyktarlaust, en getur stundum haft sterka kemíska lykt.
Amfetamín er einnig þekkt undir götunöfnum eins og speed, pepper og makka. Metamfetamín er þekkt undir nöfnum eins og meth, crystal og meta.
Kókaín er örvandi efni sem verkar á miðtaugakerfið og er unnið úr laufum kókajurtarinnar. Áhrifum þess er lýst sem skammvinnum en mjög örvandi.
Kókaíni er aðallega dreift í duftformi. Algengasta leiðin til að neyta þess er að draga það upp í nef (sniffa), en aðrar inntökuleiðir eru einnig mögulegar.
Crack er hreint og kristallað form kókaíns sem er reykt.
Kókaín í duftformi er einnig þekkt undir götunöfnum eins og coke, cola, brus, snjór eða púður.
Um MDMA
Ecstasy, þekkt sem „emma“, „molly“ og „knips“ er örvandi efni með geðbreytandi áhrif. Það eykur magn boðefnanna serótóníns, dópamíns og noradrenalíns í heilanum, sem veldur áhrifum eins og gleði, aukinni orku og tilfinningalegri tengingu. Þetta getur þó leitt til depurðar eða þunglyndis eftir á, þar sem serótónínmagn getur lækkað snarlega í kjölfar notkunar.
Oftast er efnisins neytt í gegnum munn í töflu- eða duftformi, eða í gegnum nef (sniffað) eða í endaþarm. Ecstasy-töflur koma í mörgum litum, lögunum og með mismunandi merkingum og líkjast lítið hefðbundnum lyfjum.
Áhrif af efninu vara oftast í 4 – 6 klukkustundir.
Hvað gerist í líkamanum við inntöku MDMA?
Á meðan áhrifanna gætir hækkar styrkur dópamíns, noradrenalíns og serótóníns á taugamótum og hafa áhrif á sjálfvirka taugakerfið. Það veldur því að einstaklingur verður vakandi og orkumikill og getur fengið víkkuð sjáöldur, hraðari púls og hærri líkamshita sem skapar hættu á ofþornun og getur verið lífshættulegt ástand. Af öðrum einkennum má nefna vöðvaspennu, spennu í kjálka, óróleika, hita, svita, ógleði og höfuðverk. Þessi einkenni eru yfirleitt sterkust fyrstu klukkustundirnar eftir inntöku.
Þar sem áhrif MDMA geta verið álag á líkamann upplifa margir andlega „niðursveiflu“ eftir notkun, og depurð eða vanlíðan næstu daga. Rannsóknir sýna aukna sjálfsvígshættu notenda þessara efna.
Ofskynjunarefni
Ofskynjunarefni þar sem einstaklingurinn upplifir brenglaða mynd af umhverfinu og getur til dæmis fengið sjón- eða heyrnarofskynjanir. Hann getur orðið mjög hræddur og stressaður og jafnvel valdið sér alvarlegum skaða vegna ranghugmynda. Einnig er hætta á að geðrof komi fram.
LSD (lýsergsýru díetýlamíð), þekkt sem „sýra“, er öflugt ofskynjunarefni sem veldur miklum breytingum á skynjun, tilfinningum og hugsun.
LSD er oftast tekið inn á litlum pappírsbitum („blotter“), í töfluformi, í sykurmolum eða í fljótandi formi. Áhrifin byrja yfirleitt eftir 30–90 mínútur og vara venjulega í 8–12 klukkustundir.
LSD hefur áhrif á serótónínkerfið í heilanum, sem getur valdið ofskynjunum, breyttri skynjun og breyttri upplifun á tíma og rúmi. Áhrifin eru ófyrirsjáanleg og geta verið allt frá sælutilfinningu til óþægilegra og ógnvekjandi upplifana („bad trip“).
Þjónustuaðili
Heilbrigðisráðuneytið