Ofskömmtun - upplýsingar og viðbrögð
Gul viðvörun, 13. maí 2026: Falsað Xanax/alprazólam í umferð (.pdf)
Neyðarviðbragð
Fyrstu viðbrögð við ofskömmtun
Hringdu í neyðarlínuna 112
Ef grunur er um ofskömmtun ópíóíða, gefðu naloxone eftir að hringt hefur verið í 112
Einkenni ofskömmtunar ópíóíða
Þröng sjáöldur
Grunn hryglukennd öndun
Blámi í andliti
Öndunarstopp
Eitrunarmiðstöð Landspítala veitir hjálp við eitrun.
Opið er allan sólarhringinn.
Sími: 543 2222
Staðsetning: Bráðamóttakan Fossvogi, Álandi 6
Nánari upplýsingar á vef Eitrunarmiðstöðvarinnar
Naloxone
Hvar get ég nálgast Naloxone?
Gjaldfrjálst á heilbrigðisstofnunum með skaðaminnkandi úrræði
Hjá öðrum sem þjónusta fólk sem notar ávanabindandi efni
Lögregla og sjúkraflutningar hafa naloxone tiltækt
Hvernig nota ég mótefnið?
Viðvaranir
Viðvaranir eru gefnar út um fölsuð ávana- og fíkniefni sem geta ógnað lífi og heilsu fólks.
Viðvaranir flokkast í gular og rauðar eftir alvarleika þeirra.
Litur | Áhrif | Gildir um |
|---|---|---|
Gul | Hætta á skaða eftir notkun. Hraðpróf gagnast ekki eða aðrar ástæður eru til að sýna aukna varúð. | Væg öndunarbælandi efni og/eða blöndur þeirra. |
Rauð | Bráð lífshætta / möguleg dauðsföll ef efnið er notað í stað hefðbundinna efna/lyfja. | Sterk öndunarbælandi efni sem verka á ópíóðaviðtaka t.d. sterk nitazene efni, fentanýl og blöndur sterkra öndunarbælandi efna. |
Skaðaminnkandi þjónusta
Fyrir fagfólk:
Um vímuefni
Vímuefnum má skipta í þrjá meginflokka eftir því hvaða áhrif þau hafa á líkamann og heilann.
Ítarefni um vímuefnaflokka, notkun og áhættu
Þjónustuaðili
Heilbrigðisráðuneytið