Ef þú hefur lokið námi á háskólastigi frá erlendum háskóla, getur þú óskað eftir að láta meta nám þitt hjá ENIC-NARIC skrifstofunni.
Hvað er hægt að fá metið?
Akademískt nám á háskólastigi
Stakar einingar sem lokið hefur verið á háskólastigi
Örnám frá viðurkenndum háskólum
Nám sem lokið hefur verið á framhaldsskólastigi
Hvað metum við ekki?
Námskeið án námsmats
Tungumálakunnáttu
Fylgigögn með umsókn
Afrit af prófskírteinum og námsferilsyfirlitum á frummáli á pdf. formi
Skírteinisviðauki (Diploma supplement) ef mögulegt
Ensk eða íslensk þýðing á útskriftarskírteini og námsferilsyfirliti
Staðfesting á nafnabreytingu ef við á, t.d. giftingarvottorð
Kostnaður
Ekkert gjald er tekið fyrir mat á akademísku námi
Ferli umsóknar
Þú sendir inn umsókn til ENIC-NARIC skrifstofunnar í gegnum umsóknagáttina
Þegar umsókn berst skrifstofunni færð þú sendan staðfestingarpóst
Umsóknin er skráð í umsóknarkerfi
Óskað er eftir frekari gögnum ef þess þarf
Afgreiðsla umsókna getur tekið nokkrar vikur
Svar er sent sem pdf. skjal á tölvupóstfang þegar máli er lokið
Niðurstaða mats
Ekki er hægt að kæra niðurstöðuna þar sem ENIC/NARIC skrifstofan veitir aðeins leiðbeinandi mat.
Hægt er að óska eftir frekari rökstuðningi eða biðja um nánari skoðun á máli ef grunur leikur á að eitthvað hafi farið fram hjá skoðendum.
Þjónustuaðili
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið