Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók
Þjónustuaðili:
©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Öll réttindi áskilin
1. útgáfa 2026
Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði
Reglubundin fyrirlögn stöðu- og framvinduprófa í stærðfræði gefur skólum, forsjáraðilum og nemendunum sjálfum upplýsingar um stöðu og þróun í stærðfræðinámi þeirra. Niðurstöður prófanna fela í sér vísbendingar um almenna færni nemandans í stærðfræði samkvæmt mikilvægum færniþáttum og flokkum inntaks í aðalnámskrá grunnskóla: tölum og reikningi, algebru, tölfræði og líkindum svo og rúmfræði og mælingum.
Stærðfræðinám á grunnskólastigi felur í sér grundvallarfærni fyrir nútímasamfélag. Góð færni í stærðfræði opnar dyr til samfélagsþátttöku og frekara náms en slök færni getur orðið að hindrun sé ekki gripið inn í. Góð færni felst meðal annars í skilningi og þekkingu á hugtökum sem og því að beita hugtökum eða aðferðum til að leysa stærðfræðileg og rauntengd viðfangsefni. Hluti af því reynir á að greina, túlka og rökstyðja til að komast að niðurstöðu. Góð færni er einnig háð talnaskilningi, leikni og fimi í reikniaðgerðum og því er mikilvægt að undanskilja engan þessara þátta í stærðfræðikennslu.
Nauðsynlegur hluti af þróun matstækis er gerð inntakstöflu. Tilgangur hennar er að tryggja að prófið endurspegli atriði sem eru sanngjörn og dæmigerð fyrir þá hæfni eða kunnáttu sem því er ætlað að mæla. Gerð inntakstöflu styður jafnframt við réttmæti prófsins og tryggir jafnvægi á milli tegunda og þyngdar prófatriða. Inntakstaflan er því í raun uppskriftin af stöðu- og framvinduprófinu og lýsir hún vægi inntaksflokka og færniþátta í hverri prófútgáfu fyrir sig. Prófútgáfurnar eru fjórtán eða tvær í hverjum árgangi í 4.–10. bekk. Inntakstaflan er nokkuð fastmótuð og gerir kleift að bera saman niðurstöður milli ára og þróun í frammistöðu í stærðfræði yfir lengri tíma.
Sérhver spurning (prófatriði) tilheyrir annars vegar inntaksflokki (til dæmis algebra) og hins vegar færniþætti (til dæmis beiting). Vægi sérhvers inntaksflokks og færniþáttar er fyrirfram skilgreint í prófunum og er birt hér í inntakstöflu prófsins. Birt vægi á við prófin í heild en við samsetningu þeirra er leitast við að hlutfall prófverkefna eftir færniþáttum sé sambærilegt milli inntaksflokka. Fjöldi prófatriða í einni prófútgáfu gerir það að verkum að hlutföllin fela í sér lítilsháttar skekkjumörk.
Inntakstafla fyrir stöðu- og framvindupróf í stærðfræði - inntaksflokkar

Inntakstafla fyrir stöðu- og framvindupróf í stærðfræði – færniflokkar

Einnig er vert að nefna að inntakstaflan miðar við fjölda spurninga í einni prófútgáfu. Þar sem tvær prófútgáfur eru í hverjum bekkjarárgangi er heildarfjöldi spurninga innan bekkjarárgangs tvöfaldur. Til dæmis eru samtals 48 spurningar í 4. bekk, 24 í hvorri prófútgáfu. Hver nemandi fær úthlutað einni prófútgáfu. Að teknu tilliti til tengiatriða, sem eru spurningar sem lagðar eru fyrir sameiginlega í tveimur aðlægum bekkjarárgöngum í þeim tilgangi að meta framvindu, þá er heildarfjöldi prófatriða í 4.–10. bekk samtals 330. Nánar verður fjallað um tengiatriði í próffræðilegri skýrslu stöðu- og framvinduprófa.
