Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók
Þjónustuaðili:
©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Öll réttindi áskilin
1. útgáfa 2026
Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði
Reglubundin fyrirlögn stöðu- og framvinduprófa í stærðfræði gefur skólum, forsjáraðilum og nemendunum sjálfum upplýsingar um stöðu og þróun í stærðfræðinámi þeirra. Niðurstöður prófanna fela í sér vísbendingar um almenna færni nemandans í stærðfræði samkvæmt mikilvægum færniþáttum og flokkum inntaks í aðalnámskrá grunnskóla: tölum og reikningi, algebru, tölfræði og líkindum svo og rúmfræði og mælingum.
Stærðfræðinám á grunnskólastigi felur í sér grundvallarfærni fyrir nútímasamfélag. Góð færni í stærðfræði opnar dyr til samfélagsþátttöku og frekara náms en slök færni getur orðið að hindrun sé ekki gripið inn í. Góð færni felst meðal annars í skilningi og þekkingu á hugtökum sem og því að beita hugtökum eða aðferðum til að leysa stærðfræðileg og rauntengd viðfangsefni. Hluti af því reynir á að greina, túlka og rökstyðja til að komast að niðurstöðu. Góð færni er einnig háð talnaskilningi, leikni og fimi í reikniaðgerðum og því er mikilvægt að undanskilja engan þessara þátta í stærðfræðikennslu.
Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði miða að því að kanna námslega stöðu nemenda á hverjum tíma miðað við aðalnámskrá grunnskóla sem og hvernig færni þeirra þróast yfir tíma. Inntak prófsins og val á prófatriðum byggist á hæfniviðmiðum endurskoðaðra greinasviða aðalnámskrárinnar (Mennta- og barnamálaráðuneytið, 2024).
Þar sem prófunum er ætlað að meta stöðu og framvindu nemenda árlega er sérhvert hæfniviðmið tengt ítarlegri viðmiðum sem eru skilgreind í viðmiðatöflu hvers bekkjarárgangs. Viðmiðatöflur byggja bæði á aðalnámskrá grunnskóla og stuðningsefni hennar, sem og stærðfræðiramma UNESCO þar sem skilgreind eru lágmarksþrep framvindu þekkingar og leikni nemenda í stærðfræði yfir níu námsár í samhengi við heimsmarkmið um menntun fyrir öll (UNESCO Institute for Statistics, 2021).
Þótt prófin nái yfir vítt svið ná þau ekki til allra hæfniviðmiða í stærðfræðihluta aðalnámskrár. Markmiðið er að halda prófunum hnitmiðuðum en yrði reynt að framkvæma mat á hverju einasta viðmiði myndi það einfaldlega taka of langan tíma. Nokkurn fjölda viðmiða þarf því að meta með öðrum leiðum en með stöðluðum, stafrænum prófum. Undir flokknum vinnulag stærðfræðinnar eru til dæmis hæfniviðmið um að nýta stærðfræðileg verkfæri og hlutbundin gögn, undirbúa og flytja kynningar, og undir flokknum Rúmfræði og mælingar er hæfniviðmið um að gera rúmfræðiteikningar. Viðmið fyrir þessa hæfni er ekki með góðu móti unnt að meta í stafrænni fyrirlögn. Í verkfærakistu Matsferils eru fyrirhuguð sértækari matstæki sem meðal annars tengjast þessum hæfniviðmiðum. Stöðu- og framvinduprófunum er ætlað að meta almenna framvindu í stærðfræðinámi og eru prófatriði samin, forprófuð og valin með hliðsjón af því.


