Fara beint í efnið

Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók

©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Öll réttindi áskilin

1. útgáfa 2026

    Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði

    Reglubundin fyrirlögn stöðu- og framvinduprófa í stærðfræði gefur skólum, forsjáraðilum og nemendunum sjálfum upplýsingar um stöðu og þróun í stærðfræðinámi þeirra. Niðurstöður prófanna fela í sér vísbendingar um almenna færni nemandans í stærðfræði samkvæmt mikilvægum færniþáttum og flokkum inntaks í aðalnámskrá grunnskóla: tölum og reikningi, algebru, tölfræði og líkindum svo og rúmfræði og mælingum.

    Stærðfræðinám á grunnskólastigi felur í sér grundvallarfærni fyrir nútímasamfélag. Góð færni í stærðfræði opnar dyr til samfélagsþátttöku og frekara náms en slök færni getur orðið að hindrun sé ekki gripið inn í. Góð færni felst meðal annars í skilningi og þekkingu á hugtökum sem og því að beita hugtökum eða aðferðum til að leysa stærðfræðileg og rauntengd viðfangsefni. Hluti af því reynir á að greina, túlka og rökstyðja til að komast að niðurstöðu. Góð færni er einnig háð talnaskilningi, leikni og fimi í reikniaðgerðum og því er mikilvægt að undanskilja engan þessara þátta í stærðfræðikennslu.

    Efni kaflans

    Niðurstöður stærðfræðiprófsins samanstanda af einstaklings- og hópaniðurstöðum og eru settar fram í texta, töflum og á myndrænu formi, bæði fyrir prófið í heild og hvern inntaksflokk.

    Niðurstöður nemanda – yfirlit yfir stöðu

    Myndin að neðan sýnir fyrstu niðurstöður sem kennarar sjá um nemanda. Þar er almennri stöðu og næstu skrefum í kennslu lýst, auk þess sem niðurstöður eru settar fram á mælitölu, raðeinkunn og sem hlutfall réttra svara á prófinu (sjá útskýringu á þessum hugtökum hér) . Einnig eru upplýsingar um hversu langan tíma það tók nemandann að þreyta prófið.

    Niðurstöður nemanda – nánari lýsing á stöðu

    Á myndinni fyrir neðan má sjá hvernig niðurstöður eru settar fram á mælitölukvarða þar sem:

    Lóðrétti ásinn sýnir mælitölur frá 1-19.

    Brotalínan táknar landsmeðaltalið sem er alltaf stillt á mælitöluna 10.

    Svarti punkturinn sýnir frammistöðu nemandans.

    Nemandinn sem myndin lýsir fékk mælitöluna 10 sem er færni í meðallagi. Með því að færa músarbendilinn yfir svarta punktinn fást einnig helstu upplýsingar um frammistöðu nemandans. Til hliðar við kvarðann má svo sjá lýsingu á því hvað einkennir stöðu nemenda í stærðfræði á hverju mælitölubili ásamt almennum upplýsingum um nauðsynlegar áherslur í námi.

    Niðurstöður nemanda – inntaksflokkar og prófatriði

    Niðurstöður nemenda eru birtar fyrir tvo til fjóra inntaksflokka. Flokkarnir eru tveir í prófútgáfum fyrir 4. bekk, þrír fyrir 5.-6. bekk og fjórir fyrir 7.-10. bekk. Flokkarnir eru eins og fyrr segir í handbókinni sömu efnislegu flokkar og í aðalnámskrá: tölur og reikningur, algebra, tölfræði og líkindi og rúmfræði og mælingar. Undir hverjum inntaksflokki er stutt upptalning á þeim yfirheitum hæfniviðmiða sem liggja til grundvallar í viðkomandi bekkjarárgangi. Til hliðar er kvarði og punktur með öryggisbili sem sýnir frammistöðu nemandans á hverjum inntaksflokki.

    Sett er fram þrenns konar lýsing eða flokkun á frammistöðu nemenda innan inntaksflokkanna:

    • Ræður vel við: Prófatriði sem 75% eða hærri líkur eru á að nemandi með þessa mælitölu ráði við.

    • Á mörkum að ráða við: Prófatriði sem 50-74% líkur eru á að nemandi með þessa mælitölu ráði við.

    • Ræður illa við: Prófatriði sem 33-49% líkur eru á að nemandi með þessa mælitölu ráði við.

    Með því að opna hvern flokk birtast atriðalýsingar sem sýna að hvaða marki nemandinn hefur náð tökum á efni viðkomandi inntaksflokks á stærðfræðiprófinu.

    Niðurstöður hóps – hlutfall á mælitölubili

    Staða hóps á stærðfræðiprófi er sett fram sem hlutfall nemenda á hverju mælitölubili með samanburði við landið. Efri súlan sýnir hlutfallið á landsvísu.

    Á landsvísu fær:

    • 21% nemenda mælitölurnar 1-7 en þetta eru nemendur sem þurfa stuðning og eftirfylgni vegna slakrar stöðu í stærðfræði.

    • 58% nemenda mælitölurnar 8-12 og eru á meðaltali eða við meðaltal.

    • 21% nemenda mælitölurnar 13-19 sem er betri frammistaða en hjá jafnöldrum á landsvísu.

    Mikilvægt er að túlka meðaltöl fyrir litla hópa, svo sem með færri en 10 nemendur, með fyrirvara þar sem frammistaða einstakra nemenda getur haft mikil áhrif á meðaltal bekkjarins.

    Neðri súlan sýnir stöðu bekkjarhóps og hlutfall nemenda innan mælitölubila. Í þessum tiltekna hópi er hlutfall nemenda sem fá mælitölurnar 1-7 á stærðfræðiprófitalsverthærra en á landsvísu eða 42%. Hlutfall nemenda sem sýnir betri frammistöðu en jafnaldrar er 16%. Það er ögn lægra en á landsvísu. Svo lítinn mun er þó rétt að túlka með það í huga að í þessum hóp eru aðeins 12 nemendur. Ef aðeins einn nemandi til viðbótar hefði sýnt betri frammistöðu en jafnaldrar þá hefði þetta hlutfall verið ögn hærra en á landsvísu.

    Niðurstöður hóps – meðalárangur hóps

    Staða hóps á stærðfræðiprófi er einnig sett fram á mynd þar sem meðaltal hans er gefið upp á mælitölu. Meðaltal hóps er táknað með svörtum punkti og landsmeðaltal er sýnt með brotalínu. Í dæminu á myndinni er meðaltal hópsins á mælitölunni 10, sem er við landsmeðaltal. Minni punktarnir tákna niðurstöðu einstakra nemenda. Með því að færa músarbendilinn yfir punkt og smella á hann opnast einstaklingsniðurstöður viðkomandi nemanda.

    Þrátt fyrir að frammistaða hópsins sé á landsmeðaltali þarf að huga sérstaklega að nemendum sem fá mælitölurnar 5-7. Í dæminu á myndinni eru fimm nemendur á því mælitölubili. Einnig þarf að fylgjast vel með nemendum sem fá mælitölurnar 8 og 9 þar sem þeir eru í neðri mörkum meðaltals og enn kann að vanta nokkuð upp á færni þeirra í stærðfræði. Alltaf skal stefnt að því að nemendur nái upp að meðaltali eða hærra þar sem góð færni í stærðfræði grunnskólastigs er mikilvæg forsenda fyrir samfélagsþátttöku og árangri í námi.

    Niðurstöður hóps – yfirlit yfir stöðu

    Niðurstöður nemenda innan hóps eru teknar saman í töflu eins og sýnd er hér að neðan. Hægt er að sía niðurstöðurnar og raða upplýsingum í hverjum dálki. Stafrófsröð er sjálfgefin en einnig er hægt að raða niðurstöðum t.d. eftir lægsta gildi. Þannig geta kennarar flokkað niðurstöður eftir mælitölubilum og séð auðveldlega hvaða nemendur, og þá hversu margir, glíma við vanda og þurfa stuðning.

    Eins og áður hefur verið fjallað um er færni í stærðfræði háð fjöldamörgum þáttum sem gerir það að verkum að töluverða vinnu og tíma þarf til að styrkja undirstöður og ná fram auknum árangri hjá nemendum. Oft þarf að vinna markvisst með fimi nemenda samhliða því að styrkja hugtakaskilning með skipulegri nálgun í kennslu. Nám í stærðfræði er ferli sem nær yfir langan tíma og ekki nauðsynlegt að meta framfarir nemenda á almennu stöðluðu prófi oftar en árlega. Mikilvægt er að niðurstöðurnar séu alltaf túlkaðar í samhengi við aðrar upplýsingar sem kennari hefur um nemandann, t.d. úr öðru námsmati.

    Niðurstöður hóps – inntaksflokkar og prófatriði

    Eins og í tilviki stakra nemenda eru niðurstöður hóps birtar niður á inntaksflokka. Hægt er að sjá meðalframmistöðu hópsins fyrir hvern flokk, en hún er sett fram á mælitölu ásamt öryggisbili. Einnig er hægt að opna hvern inntaksflokk og sjást þá atriðalýsingar (e. item statement) fyrir þau prófatriði sem lögð eru fyrir þennan bekkjarárgang. Hægt er að sjá hvort prófatriði er létt, miðlungsþungt eða þungt og hversu margir nemendur hópsins svöruðu tilteknu atriði rétt. Með því að færa músarbendilinn yfir i-hnappinn í viðmótinu fást upplýsingar um það sem einkennir létt, meðalþung, og þung atriði.

    Annar megintilgangur með birtingu myndarinnar er að veita upplýsingar um þá færni sem prófi er ætlað að meta. Atriðalýsingarnar gefa til kynna hvers konar færni tiltekið atriði reynir á. Hafa þarf í huga að um er að ræða bæði stafrænt fyrirkomulag prófa og stuttar prófútgáfur. Hvort tveggja hefur áhrif á það hvers konar prófatriði er hægt að útbúa og því getur ekkert eitt próf metið færni í öllum námsmarkmiðum í stærðfræði miðað við sinn bekkjarárgang. Við samsetningu prófa er stefnt að því að tryggja breidd innan inntaksflokka og færniþátta eins og unnt er. Upplýsingar um hlutfall prófatriða innan hvers inntaksflokks og færniþáttar er að finna í kafla handbókarinnar þar sem fjallað er um inntakstöflu fyrir stöðu- og framvinduprófið í stærðfræði.