Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók
Þjónustuaðili:
©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Öll réttindi áskilin
1. útgáfa 2026
Stöðu- og framvindupróf í lesskilningi
Með því að leggja stöðu- og framvinduprófin reglulega fyrir fást upplýsingar um stöðu og þróun lesskilnings nemenda. Niðurstöður þeirra gefa vísbendingar um það að hve miklu leyti nemandinn er almennt fær um að nýta sér lestur og málskilning sinn til að tileinka sér innihald texta námsefnis og að njóta ávinnings af lestri í fjölbreyttum tilgangi.
Lesskilningur er mikilvæg undirstöðufærni í námi. Góður lesskilningur er forsenda þess að hægt sé að skilja og tileinka sér efni texta á meðan slakur lesskilningur getur haft víðtæk áhrif á framvindu og frammistöðu í námi. Góður lesskilningur felst í skilningi einstakra orða, setninga og málsgreina, svo og skilningi stærri heilda eins og efnisgreina eða kafla sem síðan þarf að fella saman við eigin hugmyndir, þekkingu og sjónarmið. Góður lesskilningur er byggður á góðum málskilningi sem aftur hvílir til dæmis á góðum hugtakaskilningi og fjölbreyttum orðaforða sem þarf að fá að vaxa og dafna í takt við hækkandi aldur nemenda og stigvaxandi kröfur í námi. Góður lesskilningur er einnig háður góðri lestrar- eða umskráningarfærni og því mikilvægt að hugað sé að þessum þáttum læsis í lestrarkennslu.
Gerð inntakstöflu er ávallt hluti af þróun matstækis. Eitt meginhlutverk hennar er að tryggja að prófið endurspegli atriði sem eru sanngjörn og dæmigerð fyrir þá hæfni eða kunnáttu sem því er ætlað að mæla. Gerð inntakstöflu styður jafnframt við réttmæti prófsins og tryggir jafnvægi á milli tegunda og þyngdar prófatriða. Inntakstaflan er því í raun uppskriftin af stöðu- og framvinduprófinu og lýsir hún vægi inntaksflokka í hverri prófútgáfu fyrir sig. Inntakstaflan er fastmótuð og gerir kleift að bera saman niðurstöður milli ára og þróun lesskilnings yfir lengri tíma.
Þegar inntakstaflan er skoðuð sést að hlutfall prófatriða í hverjum flokki er mismunandi. Þannig er hlutfall prófatriða sem reyna á staðsetningu og endurheimt upplýsinga hærra hjá yngri nemendum á meðan hlutfall prófatriða sem reyna á flóknari hæfni, svo sem að ígrunda og meta upplýsingar í texta, er aðeins hærra hjá þeim eldri. Er það í samræmi við aldur og þroska nemenda og kennsluna sem þeir eiga að hafa fengið í samræmi við aðalnámskrá.
Inntakstafla fyrir stöðu- og framvindupróf í lesskilningi

