Fara beint í efnið

LANIS Skimun fyrir tal- og málþroska þriggja ára barna

2026 © Jóhanna Thelma Einarsdóttir, Þóra Másdóttir, Þóra Sæunn Úlfsdóttir, Signý Gunnarsdóttir og Patrekur Gestsson

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og námsleið í talmeinafræði við Háskóla Íslands

Þjónustuaðili: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Öll réttindi áskilin

1. útgáfa 2026

    Fjöltyngi – íslenska í leikskóla og annað heimamál

    Athugið að LANIS spurningalistinn er eingöngu staðlaður á íslensku. Þýðingarnar eru ætlaðar sem stuðningur fyrir kennara til að fá upplýsingar um stöðu í heimamáli. Einnig er hægt að nýta listann til að bera saman stöðu í heimamáli við stöðu í íslensku. Óhætt er að nýta listann til að fá upplýsingar um stöðu í heimamáli fyrir fjöltyngd börn frá 2;9 ára aldri og út leikskólagönguna alla.

    Ef um fjöltyngt barn er að ræða er lagt til að leikskólakennari finni þýðingu á LANIS á viðeigandi tungumáli og afhendi foreldrum. Sjá eftirfarandi tillögur að fyrirkomulagi:

    1. Foreldrar fylla listann út á heimamálinu ef þýðing er til (sjá skorblöð) og leikskólakennari fyllir listann út til að skoða þekkingu barnsins á íslensku.

    2. Ef þýðing á heimamáli er ekki til er mælt með að foreldrar nýti sér þá lista sem þeir treysta sér til að fylla út til að kanna þekkingu í heimamáli, t.d. á íslensku, ensku eða öðru tungumáli. Einnig er hægt að óska eftir þýðingu hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu með því að senda tölvupóst á hjalp@midstodmenntunar.is

    3. Leikskólakennari fyllir út sinn lista áður en foreldrar skila inn sínum lista. Þetta er gert til að takmarka áhrif niðurstöðu foreldra á mat kennara.

    4. Foreldrar mæta með útfylltan listann á heimamáli í leikskólann.

    5. Kennari ber listana saman og undirbýr foreldraviðtal.

    6. Leikskólakennari og foreldrar fara sameiginlega yfir niðurstöðurnar.