Fara beint í efnið

LANIS Skimun fyrir tal- og málþroska þriggja ára barna

2026 © Jóhanna Thelma Einarsdóttir, Þóra Másdóttir, Þóra Sæunn Úlfsdóttir, Signý Gunnarsdóttir og Patrekur Gestsson

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og námsleið í talmeinafræði við Háskóla Íslands

Þjónustuaðili: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Öll réttindi áskilin

1. útgáfa 2026

    Útfylling á LANIS

    LANIS er ætlað að finna börn á aldrinum 2;9–3;9 ára sem kunna að vera með frávik í málþroska og þurfa sérstaka athygli. LANIS samanstendur af tveimur eins listum, annar er ætlaður leikskólakennurum en hinn foreldrum. Kennari fyllir út sinn lista og foreldri fyllir út sinn lista og eru niðurstöður þeirra svo bornar saman, enda er örvun málþroska barnanna sameiginlegt verkefni beggja. Mikilvægt er að þau sem þekkja barnið best fylli listann út eftir bestu vitund. Í þeim tilvikum þar sem leikskólakennari er ekki til staðar getur annað starfsfólk leikskólans sem þekkir barnið best fyllt listann út. Til einföldunar verður hér eftir talað um leikskólakennara, þar sem ekki er mælt með að annað starfsfólk fylli listann út nema í undantekningartilfellum.