Handbók um útfyllingu farmverndaryfirlýsingar
Þjónustuaðili:
Leiðbeiningar um útfyllingu einstaka reita við gerð farmverndaryfirlýsingu.
Meðferð farmverndaryfirlýsingar
Skráning og yfirferð
Fylltu út yfirlýsinguna og smelltu á Skrá yfirlýsingu.
Ef villuboð koma fram þarf að lagfæra þau og smella aftur á hnappinn Skrá yfirlýsingu.
Þegar yfirlýsingin hefur verið skráð án villna birtist yfirlitssíða. Á þessari síðu er líka hægt að velja Breyta ef þarf að leiðrétta einhver atriði, eða Eyða yfirlýsingunni ef þörf krefur.
Ef allt er rétt þar smellirðu á hnappinn Afgreiða og þá opnast ný síða með hnöppunum Afturkalla og Prenta.
Útprentun og undirritun (Farmverndarfulltrúi)
Farmverndarfulltrúi þarf að:
Smella á Prenta og prenta út yfirlýsinguna (hægt er að velja Afturkalla ef eitthvað fór úrskeiðis).
Skrá stað og dagsetningu í reit 17
Undirrita í reit 19.
Gámar og tengivagnar: Ef yfirlýsingin á við hlaðinn gám eða tengivagn þarf einnig að skrá númer ökutækisins (sem flutti farm á haftasvæðið) í reit 16.
Móttaka farms (Farmflytjandi / Verndarfulltrúi hafnar)
Við móttöku á farmi sem er tilbúinn og frágenginn til útflutnings þarf farmflytjandi eða verndarfulltrúi hafnar að:
Skrá stað og dagsetningu við móttöku á farmi í reit 18.
Undirrita í reit 20.