Fara beint í efnið

Handbók um útfyllingu farmverndaryfirlýsingar

Þjónustuaðili:

Leiðbeiningar um útfyllingu einstaka reita við gerð farmverndaryfirlýsingu.

    Eftir útprentun

    16. Skráningarnúmer ökutækis

    Ef farmverndaryfirlýsing er vegna:

    • hlaðins gáms eða tengivagns, á farmverndarfulltrúi sem undirritar farmverndaryfirlýsingu jafnframt að skrá númer ökutækis, sem flutti gáminn / tengivagninn á haftasvæði hafnar.

    • farms í lausu eða lestunar með dælum á ekki að skrá númer ökutækis.

    • tómra gáma á ekki að skrá skráningarnúmer ökutækis.

    17. Staður og dagsetning (farmverndarfulltrúi)

    Farmverndarfulltrúi sem undirritar og er ábyrgur fyrir farmverndaryfirlýsingunni skráir hér stað og dagsetningu þegar undirritun fer fram.

    18. Staður og dagsetning (farmflytjandi eða verndarfulltrúi hafnar)

    Farmflytjandi, eða verndarfulltrúi hafnar, skráir hér stað og dagsetningu við móttöku á farmi sem er tilbúinn og frágenginn til útflutnings með vísan til reglna um farmvernd.

    19. Staðfesting farmverndarfulltrúa

    Hér undirritar farmverndarfulltrúi sem er ábyrgur fyrir farmverndaryfirlýsingunni skjalið.

    20. Staðfesting farmflytjanda

    Hér undirritar farmflytjandi, eða verndarfulltrúi hafnar, farmverndaryfirlýsinguna við móttöku á farmi sem er tilbúinn og frágenginn til útflutnings með vísan til reglna um farmvernd.