Fara beint í efnið

Handbók um útfyllingu farmverndaryfirlýsingar

Þjónustuaðili:

Leiðbeiningar um útfyllingu einstaka reita við gerð farmverndaryfirlýsingu.

    Um farminn, lesturnarstað og ákvörðunarland

    Brúttóþungi í kg

    Ef farmverndaryfirlýsing er vegna:

    • hlaðins gáms eða tengivagns getur skráð brúttóþyngd orðið allt að 45000 kílóum.

    • farms í lausu eða lestunar með dælum getur skráð brúttóþyngd orðið allt að 99999999 kílóum.

    • tómra gáma á ekki að skrá brúttóþyngd.

    Hleðslustaður

    Ef farmverndaryfirlýsing er vegna:

    • hlaðins gáms eða tengivagns á að skrá staðinn þar sem gámur var innsiglaður.

    • farms í lausu eða lestunar með dælum á að skrá staðinn þar sem skip var lestað.

    • tóms gáms á að skrá heiti hafnar þar sem gámur fór um borð í skip.

    Ef hleðslustaður er höfn nægir að skrá heiti hafnarinnar. Annars þarf að skrá fullt heimilisfang á hleðslustað

    Gerð svæðis: (a..100)

    Ákvörðunarland farms

    Land er valið er úr fellilista.

    Vörulýsing

    Hér á að skrá einfalda vörulýsingu.

    Ef farmverndaryfirlýsing er vegna tómra gáma eru upplýsingar sóttar sjálfvirkt í tölvukerfi farmverndar og skráðar þannig inn í svæði fyrir vörulýsingu.

    Gerð svæðis: (n...500)