Handbók um útfyllingu farmverndaryfirlýsingar
Þjónustuaðili:
Leiðbeiningar um útfyllingu einstaka reita við gerð farmverndaryfirlýsingu.
Gámanúmer eða skráningarnúmer tengivagns
Ef farmverndaryfirlýsing er vegna:
hlaðins gáms á að skrá gámanúmer.
tengivagns á að skrá skráningarnúmer tengivagns.
tóms gáms (tómra gáma) á að skrá gámanúmer.
Þegar farmverndaryfirlýsing er vegna tómra gáma birtist hnappurinn Fleiri. Smellt er á hnappinn til að bæta við línum og skrá gámanúmer (og einnig númer innsiglis, sbr. næsta lið á eftir) fyrir fleiri en einn tóman gám.
Hægt er að skrá allt að 20 stafi sem gámanúmer en allt að 8 stafi sem skráningarnúmer tengivagns.