Fara beint í efnið

Handbók um útfyllingu farmverndaryfirlýsingar

Þjónustuaðili:

Leiðbeiningar um útfyllingu einstaka reita við gerð farmverndaryfirlýsingu.

    Númer innsiglis og skráning farmverndarfulltrúa

    Númer innsiglis

    Ef farmverndaryfirlýsing er vegna:

    • hlaðins gáms eða tengivagns á að skrá númer innsiglis. Sleppa á núllum fremst í númeri innsiglis og stafnum V fremst í númeri vírinnsiglis.
      Ef breyta á númeri innsiglis á vistaðri yfirlýsingu, er smellt á blýantstákn í reitnum og númeri svo breytt. Eigi fyrirtækið boltainnsigli og vírinnsigli, birtist fyrst lítil mynd þar sem tegund innsiglis er valin. Þegar númeri innsiglis er breytt þarf í sumum tilfellum að skrá gámanúmer að nýju.

    • tóms gáms (tómra gáma) á ekki að skrá númer innsiglis.
      Þegar farmverndaryfirlýsing er vegna tómra gáma birtist hnappurinn Fleiri. Smellt er á hnappinn til að bæta við línum og skrá númer innsiglis (skráð í sömu línu og gámanúmer, sbr. næsta lið á undan) fyrir fleiri en einn tóman gám.

    Farmverndarfulltrúi sem innsiglar eða hefur umsjón með lestun

    Ef farmverndaryfirlýsing er vegna:

    • hlaðins gáms eða tengivagns á að tilgreina farmverndarfulltrúa sem innsiglaði gám eða tengivagn.

    • farms í lausu eða lestunar með dælum á að tilgreina farmverndarfulltrúa sem hafði umsjón með lestun.

    • tóms gáms (tómra gáma) á að tilgreina farmverndarfulltrúa sem undirritar og ber ábyrgð á farmverndaryfirlýsingunni.

    Valið er úr fellilista.