Fara beint í efnið

Handbók um útfyllingu farmverndaryfirlýsingar

Þjónustuaðili:

Leiðbeiningar um útfyllingu einstaka reita við gerð farmverndaryfirlýsingu.

    Dagsetning og tími

    Dagsetning innsiglunar, lestunar eða brottfarar

    Ef farmverndaryfirlýsing er vegna:

    • hlaðins gáms eða tengivagns á að tilgreina dagsetningu innsiglunar.

    • farms í lausu eða lestunar með dælum á að tilgreina lokadag lestunar.

    • tóms gáms (tómra gáma) á að tilgreina dagsetningu brottfarar.

    Til hægðarauka er núverandi dagsetning birt.

    Farmverndarfulltrúi velur dagsetningunni ef innsiglun / lestun / brottför var á öðrum degi en þeim sem birtist sjálfkrafa. Ný dagsetning er valin með því að smella á núverandi dagsetningu og velja nýja dagsetningu úr dagatali, sem þá birtist.

    Tími innsiglunar, lestunar eða brottfarar

    Ef farmverndaryfirlýsing er vegna:

    • hlaðins gáms eða tengivagns á að tilgreina tíma innsiglunar.

    • farms í lausu eða lestunar með dælum á að tilgreina tímann þegar lestun lauk.

    • tóms gáms (tómra gáma), heitir svæðið Tími brottfarar og er ekki fyllt út.

    Til hægðarauka birtist tíminn þegar farmverndaryfirlýsing var opnuð á vef.

    Farmverndarfulltrúi breytir tímanum, ef innsiglun / lestun lauk á öðrum tíma en þeim sem birtist sjálfkrafa.

    Nýr tími er valinn með því að smella á núverandi tíma og velja nýjan tíma í glugga, sem þá birtist.