Fara beint í efnið

Handbók um útfyllingu farmverndaryfirlýsingar

Þjónustuaðili:

Leiðbeiningar um útfyllingu einstaka reita við gerð farmverndaryfirlýsingu.

    Um fyrirtækið, heimildarnúmer og farmverndaryfirlýsinguna

    Um fyrirtækið

    Upplýsingar um:

    • Nafn

    • Kennitölu

    • Heimilisfang

    eru sóttar sjálfvirkt í tölvukerfi farmverndar og skráðar þannig inn í farmverndaryfirlýsingu. Farmverndarfulltrúi getur ekki breytt upplýsingum.

    Heimildarnúmer

    Þegar fyrirtækið fékk viðurkenningu sem farmverndaraðili úthlutaði Tollstjóri því heimildarnúmeri vegna farmverndar.

    Upplýsingar um heimildarnúmer fyrirtækisins eru sóttar sjálfvirkt í tölvukerfi farmverndar og skráðar þannig inn í farmverndaryfirlýsingu. Farmverndarfulltrúi getur ekki breytt upplýsingum.

    Raðnúmer farmverndaryfirlýsingar

    Þetta er einkvæmt númer sem farmverndaryfirlýsingin fær í tölvukerfi farmverndar.

    Upplýsingar eru sóttar sjálfvirkt í tölvukerfi farmverndar og skráðar þannig inn í farmverndaryfirlýsingu. Farmverndarfulltrúi getur ekki breytt upplýsingum