Fara beint í efnið

Handbók efnisstefnunnar

Þjónustuaðili:

    Viðhald efnis á Ísland.is

    Birting efnis á vefnum er bara fyrsta skrefið. Ef ekki er gert ráð fyrir verkaskiptingu sem skýrir hver skipuleggur, birtir, viðheldur og grisjar efni er hætta á að vefurinn fyllist fljótt af úreltu og gagnslitlu efni.

    Góð efnisstjórnun felur því einnig í sér að sinna því sem þegar er til. Ábyrgð á efni þarf að vera skýr og efnið endurskoðað og grisjað reglulega. Þannig endurspeglar vefurinn þær upplýsingar og þjónustu sem stendur almenningi til boða á hverjum tíma.