A. Notendur og notendaþarfir
Allt efni á Ísland.is byggir á notendaþörfum. Við nýtum notendarannsóknir til að greina þarfir áður en efni er birt. Einnig er mikilvægt að ítra efni, taka við endurgjöf og grisja það sem ekki þjónar tilgangi sínum.
Við hjálpum fólki að ljúka sínum erindum
Flestir koma á vefinn til að sinna tilteknu erindi og búast við upplýsingum sem hjálpa þeim. Fæstir eru að skoða hvað er í boði eða fara yfir mikið lesefni. Notendaþörf (e. user need) lýsir því sem notandi vill ná fram, hvort sem það er að fá upplýsingar eða nýta þjónustu. Algengast er að notendur vilji klára tiltekna aðgerð eða þjónustuferli eða leita að upplýsingum.
Hvernig skilgreinum við notendaþörf?
Notendaþörf á að vera skýr og afmörkuð. Notendaþörf er ekki það sama og markhópur.
Notendaþörf: hvað fólk þarf að gera eða leysa.
Markhópur: hverjir nota eitthvað, út frá stöðu þeirra eða eiginleikum.
Sem [tiltekinn notandi]
vil ég / þarf ég að [gera eitthvað eða vita eitthvað]
svo að [ég nái ákveðnu markmiði].
Dæmi 1
Sem stjúpforeldri barns undir 18 ára vil ég vita hvernig ég get ættleitt stjúpbarn svo að við njótum sömu réttinda og aðrir foreldrar og börn.
Þörfinni er svarað þegar notandi veit:
Hvað felst lagalega í ættleiðingu.
Hvaða skilyrði þarf að uppfylla.
Hvernig umsóknarferlið virkar.
Hvaða gögn og samþykki þarf.
Hvað gerist eftir samþykki eða synjun.
Hvert megi leita eftir frekari upplýsingum.
Dæmi 2
Sem byrjandi í rekstri þarf ég að vita hvaða rekstrarform eru í boði svo að ég geti valið það form sem hentar mínum rekstri best.
Þörfinni er svarað þegar notandi:
Veit hvaða rekstrarform eru í boði og hvar upplýsingar um þau er að finna.
Hefur mátað sínar þarfir við valkostina.
Þá tekur við næsta „þörf“, sem gæti til dæmis verið að stofna eignarhaldsfélag.