Fara beint í efnið

Handbók efnisstefnunnar

Þjónustuaðili:

    A.1. Efni sem notendur finna

    Skrifum og setjum efnið upp á þann hátt að auðvelt sé fyrir notendur að finna það.
    Rétt uppsett efni hjálpar notendum að finna upplýsingarnar, skilja þær og nýta sér þær með því að:

    • búa þá undir það sem þeir munu lesa,

    • hjálpa þeim að skanna efnið,

    • hjálpa þeim að muna efnið.


    Góð uppsetning hjálpar líka leitarvélum og gervigreindartólum að kortleggja efnið og miðla því á árangursríkan hátt.

    Það eru fjórar meginleiðir að efni á Ísland.is:

    • gegnum leiðakerfi/þjónustuflokka á Ísland.is,

    • gegnum innri leit á Ísland.is,

    • beint af google.com, annarri leitarvél eða gervigreindartóli,

    • gegnum lendingarsíðu stofnunar – island.is/s.


    Öfugi píramídinn

    Nýtum lögmál öfuga píramídans. Mikilvægustu skilaboðin, upplýsingarnar sem flestir eru að leita að, koma fremst en þær upplýsingar sem eru gagnlegar en ekki endilega nauðsynlegar eru neðar.

    Skýringarmynd öfuga píramídans.

    Notum lýsandi titla og millifyrirsagnir svo auðvelt sé að skanna efnið.