Almennt les fólk aðeins hluta texta á hverri vefsíðu, oft bara um 20-28% textans.
Fólk skannar síður meira en það les.
Lestur á pappír er línulegur og í lengri lotum en lestur á stafrænu efni. Notendur á vefnum hafa tilhneigingu til að meðtaka upplýsingar afar hratt en á yfirborðskenndan hátt.
Lestur á vef er oft háður stöðugum truflunum.
Fólk les ekki texta á netinu staf fyrir staf. Það einbeitir sér að orði eða orðhluta, meðtekur upplýsingar, hoppar svo yfir og einbeitir sér að næsta orði sem það þekkir. Það er auðveldara að spá fyrir um orð sem eru stutt og einföld, en flókin og óalgeng orð hægja á lestrinum. Það flýtir fyrir lestri að nota algeng orð og forðast lagamál, tæknimál og flókin orð sem fáum er tamt að nota.
Þess vegna notum við:
bíll – frekar en bifreið,
að skilja – fremur en að slíta hjúskap,
skrá fyrir fram – fremur en forskrá,
afrit – fremur en samrit,
veikindi – fremur en heilsubrestur,
eitthvað vantar – frekar en einhverju er ábótavant.
Flestir notendur vilja klára erindi sín eins hratt og hægt er, með lágmarksfyrirhöfn. Fæstir eru að leita að langri lesningu um viðkomandi viðfangsefni. Þess vegna skiptir máli hvar lykilupplýsingar á hverri síðu eru staðsettar. Þær geta auðveldlega týnst ef ekki er hugað að staðsetningu þeirra.
Lagkökusnið
Til eru nokkur þekkt skannmynstur í lestri á vef. Efni á Ísland.is er sett upp með „lagkökusniði“ sem lýsir því hvernig notendur skanna efni á vef þegar það er skipulagt í skýra kafla með fyrirsögnum. Notendur lesa þá fyrst fyrirsagnirnar og ákveða síðan hvort þeir vilji lesa meira í tilteknum kafla.
Lagkökusnið næst með:
stuttum textaköflum,
lýsandi millifyrirsögnum þar sem lykilorð eru framarlega,
góðri uppbyggingu á texta sem dregur fram aðalatriði, til dæmis með punktalistum.
Notendur horfa mest á titil og millifyrirsagnir þangað til þeir finna kafla sem þeir hafa áhuga á, þá byrja þeir að lesa.
Þetta hefur mikil áhrif á hvernig efni ætti að vera uppsett, sérstaklega á farsímum þar sem notendur skrolla meira og sjá minni hluta síðunnar í einu.
Dæmi um uppsetningu í lagkökusniði
Dæmi um uppsetningu sem er erfiðara að skanna