A.3. Efni sem notendur geta notað
Orðalag, uppsetning og frágangur á Ísland.is eiga að auðvelda lesendum að meðtaka innihald efnisins án fyrirhafnar. Ef efni er óskýrt, of flókið eða of langt er erfitt fyrir notendur að átta sig á hvað á við um þá og hvað þeir eiga að gera. Þá nýtist efnið ekki, jafnvel þótt upplýsingarnar séu réttar.
Algengustu hindranirnar eru:
Sérfræðihugtök og stjórnsýslumálfar.
Notkun hugtaka sem eru sjálfsögð innan stofnana en ókunn fyrir almenning, til dæmis heiti á úrræðum, lagaleg hugtök eða innri flokkanir.Óskýr orðasambönd og of almennt orðalag.
Óbein eða óljós framsetning sem tilgreinir ekki hvað notandi þarf að gera eða má ekki gera.
Dæmi um slíkt orðalag:
... eftir atvikum,
... ásamt viðeigandi gögnum,
... heimilt er að sækja um,
... að láta undir höfuð leggjast,
... sýna vítavert gáleysi.
Mikilvæg atriði falin í texta.
Upplýsingar um skilyrði, undantekningar eða næstu skref eru „falin“ í textanum í stað þess að vera sett fram með skýrum hætti.