Embætti landlæknis óskar eftir að ráða sviðsstjóra eftirlits og gæða heilbrigðisþjónustu. Verkefni sviðsins eru margþætt. Þar má nefna eftirlit með heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsmönnum, gæðaþróun heilbrigðisþjónustu, umsjón með veitingu starfsleyfa og sérfræðileyfa heilbrigðisstétta, umsjón með veitingu rekstrarleyfa í heilbrigðisþjónustu, eftirlit með lyfjaávísunum og lyfjanotkun, umsýsla kvartana almennings vegna heilbrigðisþjónustu og rannsókn alvarlegra atvika.