3. október 2019
3. október 2019
Óskum eftir að ráða sviðsstjóra eftirlits og gæða heilbrigðisþjónustu
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða sviðsstjóra eftirlits og gæða heilbrigðisþjónustu. Verkefni sviðsins eru margþætt. Þar má nefna eftirlit með heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsmönnum, gæðaþróun heilbrigðisþjónustu, umsjón með veitingu starfsleyfa og sérfræðileyfa heilbrigðisstétta, umsjón með veitingu rekstrarleyfa í heilbrigðisþjónustu, eftirlit með lyfjaávísunum og lyfjanotkun, umsýsla kvartana almennings vegna heilbrigðisþjónustu og rannsókn alvarlegra atvika.
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða sviðsstjóra eftirlits og gæða heilbrigðisþjónustu. Verkefni sviðsins eru margþætt. Þar má nefna eftirlit með heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsmönnum, gæðaþróun heilbrigðisþjónustu, umsjón með veitingu starfsleyfa og sérfræðileyfa heilbrigðisstétta, umsjón með veitingu rekstrarleyfa í heilbrigðisþjónustu, eftirlit með lyfjaávísunum og lyfjanotkun, umsýsla kvartana almennings vegna heilbrigðisþjónustu og rannsókn alvarlegra atvika. Þá sinnir sviðið lögfræðilegum málefnum embættisins. Leitað er að einstaklingi sem hefur stjórnunarhæfileika og metnað til að þróa framsækið og heilsueflandi vinnuumhverfi. Starfið felur í sér fjölbreyttar áskoranir til að ná markmiðum embættisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sviðsstjóri hefur yfirumsjón með starfsemi, stjórnun og rekstri sviðsins sem felur m.a. í sér:
Verkstjórnun og yfirsýn sbr. ofangreind verkefni
Úrvinnsla einstakra mála
Mannauðsstjórnun í samstarfi við mannauðsstjóra
Fjármálastjórnun og áætlanagerð í samstarfi við fjármálastjóra
Stefnumótun sviðs og embættis
Önnur verkefni að beiðni landlæknis
Hæfnikröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi, framhaldsnám er kostur
Þekking og reynsla á sviði stjórnunar er skilyrði
Þekking og reynsla innan heilbrigðisþjónustu er skilyrði
Þekking á sviði stjórnsýslu er skilyrði
Góð almenn tölvukunnátta
Góð kunnátta í íslensku og ensku, gjarnan vald á einu Norðurlandamáli
Jákvæðni og framúrskarandi lipurð í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Sótt er um starfið á Starfatorgi.
Upphafsdagur starfs er samkomulagsatriði. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá, auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningi fyrir hæfi ásamt sýn á starfið. Ákvörðun um ráðningu verður tekin út frá innsendum gögnum og viðtölum. Embættið hvetur karla jafnt sem konur til að sækja um starfið. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknin gildir í 6 mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út nema umsækjandi ákveði annað. Embætti landlæknis áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 28.10.2019
Nánari upplýsingar veita
Þórgunnur Hjaltadóttir - thorgunnur@landlaeknir.is - 825-5136
Alma Dagbjört Möller - mottaka@landlaeknir.is - 510-1900
Landlæknir