Minningarstund vegna flugslyssins við Sauðahnjúka í gær, 9.júlí verður haldin í Egilsstaðakirkju á morgun þriðjudaginn 11.júlí kl. 18:00.
Kveikt verður á kertum í minningu þeirra sem létust. Prestar kirkjunnar ásamt fulltrúum úr viðbragðshópi RKÍ á Austurlandi verða á staðnum til sálræns stuðnings.